157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:29]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég vil fagna því sérstaklega að þetta mál sé komið hér á dagskrá. Ég fór í fundarstjórn í gær og kallaði eftir því hvar þetta mál væri statt í ljósi þess að hér varð uppi fótur og fit fjórum klukkustundum fyrir þinghlé núna fyrir jólin af því að það lá svo mikið á að koma þessu máli í gegn. Nú, tveimur vikum og 22 málum seinna, af þeim sem er búið að taka hér fyrir á þingi, þá loksins kemur þetta mál og ég vil fagna því. Ég vil líka fagna þessu frumvarpi. Það er rétt skref í rétta átt. En ég vil þó taka undir með hv. þm. Brynjari Níelssyni og þeim breytingartillögum sem hann leggur til við frumvarpið, sérstaklega þegar maður horfir á breytingarnar í 1. gr., að taka út „ítrekað“. Þá kemur hér, með leyfi forseta:

„[H]ann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur“ — ef „ítrekað“ er tekið út þá verður það: „dæmdur fyrir afbrot sem ógna allsherjarreglu og almannaöryggi“.

Ég hef líka velt því fyrir mér þegar maður hefur horft upp á hælisleitendur vera að skvetta málningu á fréttaljósmyndara, skemma eignir Stjórnarráðsins eins og ráðuneyti og annað, skvetta málningu; hvenær kemur sú heimild inn að það sé orðið brot sem t.d. megi fara að vísa fólki úr landi fyrir? Ég held að þetta sé skref í rétta átt en ég held að það séu mörg skref sem við eigum eftir að taka þegar kemur að þessum málaflokki. Eins og hv. þm. Brynjar Níelsson sagði eftir heimsókn hans og þáverandi hæstv. dómsmálaráðherra, Jóns Gunnarssonar, til Danmerkur, ef ég man rétt, þá sögðu danskir kollegar þeirra að Ísland væri þó í þeirri stöðu að geta snúið taflinu við og geta forðað því að fara í sömu átt og Norðurlöndin.

Þess vegna fagna ég því að hæstv. dómsmálaráðherra er farinn að viðra það í fjölmiðlum, ég held að bara í dag hafi hann viðrað þá hugmynd í Morgunblaðinu að nú sé kominn tími á að þeir Sýrlendingar sem komu hingað til lands fari til síns heima. Það er kominn friður í Sýrlandi og nú er kominn tími á að þeir Sýrlendingar sem komu hér vegna þess stríðsástands sem þar var fari til síns heima. Ég velti því fyrir mér, virðulegur forseti: En hvað með Palestínu, þá Palestínumenn sem hafa komið hér? Nú er kominn friður í Palestínu. Það er verið að skipa svokallaða uppbyggingarnefnd fyrir Gaza. Er ekki kominn tími á að þeir Palestínumenn sem hingað komu fari heim aftur til að taka þátt í því uppbyggingarstarfi sem er fram undan þar? Og vonandi kemst friður fljótlega á í Úkraínu eftir þetta fjögurra ára stríð sem er búið að vera þar. Vonandi kemst friður fljótlega á þar og þá geta þeir Úkraínumenn sem hingað hafa komið snúið til síns heima, en þeir eru, ef ég las rétt í viðtali við hæstv. dómsmálaráðherra, um 60% af hælisleitendum á Íslandi.

Ég held að það sé líka mikilvægt að við horfum til frekari þátta þegar kemur að landamærunum og hvernig við tökum á skipulagðri glæpastarfsemi og öðru sem hefur verið fylgifiskur þessa innflæðis af útlendingum og hælisleitendum hingað til lands. Hv. þm. Jón Gunnarsson hefur viðrað þær hugmyndir, og ég tek undir þær, að skoða beri að leigja t.d. fangelsisaðstöðu annars staðar fyrir erlenda fanga sem hér eru í fangelsum. Um 40–50% af föngum á Íslandi eru útlendingar. Ég tel að það sé miklu betra að þeir útlendingar sem eru hér í fangelsunum séu þá bara vistaðir í einhverju úrræði sem við höfum gert samninga um, eins og önnur ríki hafa verið að skoða, að vista þessa útlendinga þá í fangelsum erlendis. Þar með getum við líka rýmkað fyrir þeim Íslendingum sem jafnvel bíða eftir því að taka út fangelsisvist.

Ég held að það sé líka mikilvægt, virðulegur forseti, að við skoðum líka, og að það verði kafað djúpt í almannatryggingakerfið, að við skoðum bótagreiðslur og greiðslur úr almannatryggingakerfinu til útlendinga. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við förum að kafa ofan í það hvernig t.d. það kerfi er notað. Það sem er kannski mikilvægast er að við lærum af reynslu annarra. Sjáum hver staðan er í Svíþjóð. Hver er staðan í Svíþjóð í dag? Sænski forsætisráðherrann talar nú fyrir því að það eigi að fara að lækka sakhæfisaldur. Það á að fara að lækka sakhæfisaldur í Svíþjóð. Og af hverju er það? Jú, það er af því að erlend glæpagengi, sem jafnvel er stjórnað af einhverjum mönnum sem eru búsettir í Tyrklandi — erlend glæpagengi hafa verið að nota börn til að fremja ódæðisverk, jafnvel morð, aftökur eru framdar af börnum á Norðurlöndum í gegnum þessi glæpagengi. Og nú á að fara að lækka sakhæfisaldurinn á Norðurlöndum til að bregðast við þessu ástandi. Það er einmitt þetta sem ég tel að kollegar hv. þm. Brynjars Níelssonar og Jóns Gunnarssonar í Danmörku hafi einmitt verið að tala um, það ástand sem komið er upp og við fáum fréttir af skotárásum, sprengjum og öðru, t.d. í Svíþjóð. Við viljum ekki fara þangað og við höfum enn þá tækifæri til að fara ekki á þennan stað. Ábyrgðin liggur hjá okkur.

Við sjáum líka ástandið sem er núna komið upp í Þýskalandi, Bretlandi og Frakklandi. Þar er ástandið að verða óhugnanlegt og óviðráðanlegt fyrir stjórnvöld. Síðan sjáum við lönd eins og Pólland og Ungverjaland sem hafa tekið gríðarlega hart á sínum landamærum og þar er ástandið og staðan allt önnur. Við eigum að vera hörð á því, Íslendingar, að þeir sem koma hingað og bera ekki virðingu fyrir íslenskum gildum, tungu og menningu, þeir hafa ekkert hingað að gera. Þeir sem ætla að koma hingað og leggja ekkert af mörkum og leggjast á bóta- og velferðarkerfið hafa heldur ekkert hingað að gera. Það er okkar skylda sem erum hér á Alþingi Íslendinga að setja lög sem vernda íslenska borgara og standa vörð um íslenska menningu og tungu. Það er okkar skylda sem stöndum hér og vinnum hér á hv. Alþingi. Ég held að það sé kominn þingmeirihluti fyrir því að fara að taka harðar á þessum málum og ganga enn lengra.

Ég vil að lokum, virðulegur forseti, minna á það sem forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, sagði: Þú getur ekki haft bæði veik landamæri og hælisleitendur og sterkt velferðarkerfi. Þetta er bara blákaldur sannleikur, þetta eru blákaldar staðreyndir og við verðum að horfast í augu við það og setja lög og reglur sem standa vörð um velferðarkerfið og standa vörð um sterk landamæri, að hingað komi ekki fólk sem ætlar ekki að virða okkar gildi, ætlar ekki að hafa sama skilning á mannréttindum og við. Það er í rauninni það sem við eigum að gera hér á Alþingi Íslendinga fyrst og fremst.