157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Víðir Reynisson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var áhugaverð. Ég þurfti reyndar að einbeita mér til að tapa ekki þræðinum því að fljótlega í ræðunni fór hann svolítið út fyrir það sem við erum kannski endilega að ræða hér, um þessa afturköllun verndar, og fór að tala um ýmislegt annað í þessu. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir okkur hér á hinu háa Alþingi þegar við erum að fjalla um þessi mál, fjalla um hælisleitendur sem hingað koma, að við missum aldrei sjónar á því og gleymum því aldrei að það er enginn á ferð um heiminn sem flóttamaður og endar í einhverju landi þar sem hann sækir um alþjóðlega vernd í einhverjum léttleika. Það er eitthvað sem er á bak við það sem hefur rifið fólk upp með rótum og það endar stundum á Íslandi og stundum einhvers staðar annars staðar þar sem það vonandi fær þá aðstoð sem það þarf til að vinna úr sínum málum. Og vonandi verða aðstæður þannig síðan í þeirra heimalandi, hv. þingmaður nefndi hér Sýrland sem dæmi, að fólk geti snúið heim aftur og tekið þátt í uppbyggingu samfélagsins eftir þær hörmungar sem hafa gengið yfir. En það fer enginn á flótta léttvægt með það í huga að finna einhvers staðar eitthvað.

En í öllum hópum eru svartir sauðir og það eru þeir sem við erum að horfa á hér. Eins og kom fram hér í ræðu fyrr í dag þá erum við kannski að horfa á að þetta séu einhverjir tíu einstaklingar á ári sem falla undir þetta. Á síðasta ári komu hingað 1.600–1.700 hælisleitendur. Fyrirspurn mín til þingmannsins er kannski akkúrat á þessum nótum af því að hann fór um víðan völl í þessu. Mig langar aðeins að heyra betur hvað hann er að hugsa um þetta frumvarp og það sem tengist því að við séum að ná utan um þá sem hingað eru komnir (Forseti hringir.) og fremja glæpi sem við erum búin að skilgreina að einhverju leyti í okkar vinnu hverjir eru og hvaða viðurlög eru við, og þá m.a. að vísa fólki úr landi. Mig langaði aðeins að heyra þingmanninn (Forseti hringir.) fara inn í þann kjarna í sinni ræðu.