útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir hans fyrri spurningu. Eins og ég sagði áðan þá er þetta skref í rétta átt. En ég tel að breytingartillaga hv. þm. Brynjars Níelssonar sé bæting á frumvarpinu. Það hefði verið óskandi að við hefðum getað náð þessum skrefum miklu fyrr. En eins og hv. þm. Brynjar Níelsson fór vel yfir hér áðan þá var það bara þannig að samflokksfólk hv. þm. Víðis Reynissonar barðist gegn því með kjafti og klóm að hér færu nokkur lög í gegn. Flokkur hæstv. dómsmálaráðherra, Viðreisn, fór líka í málþóf út af útlendingamálum. Þess vegna er þverpólitísk samstaða um þessi mál hér í dag og það er fagnaðarefni að Samfylkingin og Viðreisn hafi áttað sig á því að það þyrfti að stíga ákveðin skref. Þetta eru skref í rétta átt. Í ræðu minni hér áðan var ég bara að velta því fyrir mér hver yrðu næstu skref. Við sjáum þá árekstra og þau vandamál sem koma líka upp þegar landamæri hafa nánast brostið eins og við sjáum í sumum löndum. Sem betur fer er því ekki fyrir að fara hér. En við verðum að halda vöku okkar og halda hér uppi sterkum landamærum og hafa líka sterkar reglur og viðmið um það hverja við viljum sjá koma hingað og hvaða kröfur við gerum til þeirra sem koma hingað.