157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Víðir Reynisson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég hjó eftir því í ræðu hv. þm. Brynjars Níelssonar að hann talaði um að það hefði ekki síst verið samstarfsflokkur þeirra í ríkisstjórninni á þeim tíma, sem var nú hvorki Samfylkingin né Viðreisn, sem hefði kannski valdið því að málin komust ekki einu sinni í gegnum ríkisstjórn og hvað þá inn í þingið fyrr en seint og illa og eftir miklar breytingar. Það breytir því ekki að stefna Samfylkingarinnar er sú, þegar kemur að hælisleitendum, að við sýnum skilvirkni og mannúð. Það er ekki gott að fólk þurfi að bíða mjög lengi eftir svörum. Kerfið þarf líka að vera skilvirkt og vinna hratt og þetta er eitt skrefið í því að við reynum að finna aðila sem eru hingað komnir og brjóta hér lög svo að þeir séu þá ekki að tefja eða skemma fyrir því að aðrir hljóti þá þjónustu sem þeir þurfa að hafa.

Seinni spurningin mín snýr einmitt að þessu. Við erum að fara að stíga næstu skref og það eru nokkur þingmál sem hafa verið kynnt sem eru á leiðinni inn í þingið, eða eru jafnvel komin inn í þingið, um brottfararstöð, dvalarleyfi og fleiri mál; þingsályktunartillögur og annað sem snertir þessi mál öll. Ég spyr hvort hv. þingmenn séu ekki sammála mér um að við verðum að vanda okkur þegar við erum að tala um þessi mál svo að það sé þannig að þegar við erum að fjalla um tiltekin atriði í þessu reynum við að einbeita okkur að þeim á þeim tíma, en séum ekki að blanda þessu öllu saman. Ég held að þingmaðurinn hafi kannski farið aðeins of langt í því að blanda hér saman þeim sem almennt koma til Íslands, sem eru útlendingar sem koma til Íslands til að starfa, sem koma hér innan EES-svæðisins eða utan EES-svæðisins, og síðan þeim sem hingað koma sem umsækjendur um alþjóðlega vernd. Ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur til að ná árangri og áframhaldandi þverpólitískri sátt um þessi mál að við vöndum okkur; gætum þess hvernig við tölum og um hvað við erum að tala og einbeitum okkur að því verkefni sem liggur á borðinu í hvert sinn. Núna er það afturköllun alþjóðlegrar verndar og breyting á þessari séríslensku reglu um 18 mánuðina.