útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir hans seinni spurningu. Við sjáum alveg hvernig dönsk stjórnvöld hafa verið að taka á málum og þau hafa verið að ganga mjög langt; eru virkilega að taka á þessum hælisleitendamálum. Ég er alveg sammála því að við megum ekki rugla þessu saman við umræðu um útlendinga, fólk sem er að koma hingað og vinna, fólk sem vinnur hér út um allt og er vinnuafl sem er að koma hingað inn. Þetta eru tvö aðskilin mál. Við erum ekki að tala um alla útlendinga á Íslandi í þessu máli, við erum að tala um hælisleitendur sem koma hingað. Síðan er það náttúrlega vandamálið eins og dönsk stjórnvöld hafa gefið út — það hefur verið gefin út tölfræði yfir það hvernig ákveðnir hópar hafa þrifist í dönsku samfélagi umfram aðra hópa. Þetta eru líka blákaldar staðreyndir sem ég held að við getum ekki bara horft fram hjá eða sleppt því að ræða eða verið hrædd við að ræða. Við erum kannski komin með stóra hópa eins og við höfum séð víðs vegar í Evrópu sem bera enga virðingu fyrir þeirri menningu og þeim gildum sem eru í heimalandinu. Þetta eru allt viðvörunarmerki sem við verðum að horfa á þegar við erum að horfa á það hverjir eru að koma inn til landsins. Við erum nokkrum árum á eftir Evrópu, misjafnlega mörgum árum, í sumum tilfellum jafnvel áratugum, og mér finnst að við verðum líka að læra af reynslu annarra ríkja.