157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:47]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það hafa verið fróðlegar umræður hér um þetta mál við 2. umræðu og í raun áhugavert að fá inn hér á síðustu stundu fyrir þessa umræðu nýja breytingartillögu sem hefur verið tilefni til vangaveltna um ýmis mál. Ég vil við þetta tækifæri segja að það er fagnaðarefni að málið skuli í sjálfu sér vera komið fram og vonandi verður það afgreitt fljótlega þótt ég vilji láta hafa það eftir mér hér í þessari umræðu að ég er kannski ekki alveg sannfærð, nái það fram að ganga, um að þessar lagabreytingar muni raunverulega skipta sköpum í öllu þessu kerfi sem við höfum. Ástæðurnar fyrir því eru kannski nokkrar sem ég ætla að fá að reifa hér. Í greinargerðinni er sérstaklega vikið að áhrifum en það hefur verið reynt að leggja mat á áhrifin eins og skylt er að gera við smíð lagafrumvarpa. Því miður er það svo að í þeim kafla greinargerðarinnar er bara lagt mat á þau áhrif sem verða vegna breytinga sem gerðar eru á tímafrestum, sem er hin 18 mánaða regla sem er kölluð svo og kveður á um að hafi menn dvalið lengur en 18 mánuði eigi þeir rétt á að fá einhvers konar vernd, annaðhvort af mannúðarástæðum eða af öðrum ástæðum. Með þessu frumvarpi er lagt til — og það er gott — að þessi frestur falli niður þannig að tímafrestur verði í sjálfu sér ekki forsenda fyrir einhvers konar veitingu dvalarleyfis, verndar eða hælis, svo að ég leyfi mér að nota orðið hælisumsóknir sem samnefnara yfir þetta allt saman. Ég veit að ég er með því að strjúka einhverju fólki öfugt, fólki sem vill ekki kalla þetta umsókn um hæli eða hælisleitendur, en þannig var það nú um langt skeið og ég er orðin of gömul til að breyta um tungutak að þessu leyti.

Ég hefði haldið að það hefði verið tilefni til þess að leggja örlítið mat á það og bara til upplýsingar fyrir þingið, ef ekki í greinargerð þá í nefndinni sjálfri, þannig að það hefði getað verið reifað í nefndaráliti hversu mikil áhrifin yrðu, nái þetta frumvarp fram að ganga, t.d. á þann hóp sem hefur verið dæmdur; hefur verið staðinn að glæpsamlegu atferli, situr í fangelsi, hefur sem sagt hlotið dóm. Samkvæmt þessu frumvarpi er nefnilega kveðið á um að heimilt sé að afturkalla vernd slíkra einstaklinga að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Það kom fram hér í andsvörum við hv. þm. Guðmund Ara Sigurjónsson, sem situr í nefndinni, að í dag væru það tíu manns sem þetta gæti átt við. En ég hef fengið nánari upplýsingar um það að þetta eru í rauninni tíu manns á ári og það er bara nokkuð stór hópur, óþægilega fjölmennur hópur, að mínu mati; að það skuli vera tíu manns á ári, í hópi þeirra sem hingað koma og hafa notið gestrisni og velvilja íslenska ríkisins og fengið dvalarleyfi hér á grundvelli mannúðar, sem hafa ekki látið sitt eftir liggja í glæpaheiminum. Það má því kannski gera ráð fyrir að þetta frumvarp hafi einhver áhrif á þennan hóp.

Hins vegar er það líka til að draga úr áhrifum þessa frumvarps að breyting er gerð sem lýtur að því að þétta þau réttindi sem þeir hafa sem missa alþjóðlega vernd sem þeir hafa hingað til getað sótt, þ.e. þá erum við að tala um tilvik þegar menn missa vernd vegna þess að aðstæður í heimalandinu hafa breyst. Menn fá vernd með vísan til þess að það var stríð í heimalandinu. Svo hættir stríðið og þá eru ekki lengur forsendur fyrir verndinni. Vernd er veitt tímabundið til nokkurra ára í senn og þannig missa einstaklingarnir vernd. En lögin í dag kveða á um að viðkomandi geti sótt um dvalarleyfi á grundvelli annars en verndar, þ.e. á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Í þessu frumvarpi er einhverra hluta vegna, ég veit ekki hvert tilefnið var, lagt til að sérstaklega verði kveðið á um að stjórnvöld skuli taka til athugunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða við þær aðstæður í stað þess að það sé eins og það er í dag að menn hafi heimild til að sækja um. Það er verið að leggja ríkari skyldur á stjórnvöld til að kanna grundvöll fyrir áframhaldandi dvöl, einhvers konar áframhaldandi hælisvist hér á landi, þótt það yrði ekki í þeim tilfellum með vísan til aðstæðna í heimalandi viðkomandi. Mér finnst þetta kannski til þess fallið að draga úr áhrifum frumvarpsins ef markmiðið er það að draga úr eða koma meira skikki á veitingu dvalarleyfa hér á landi með vísan til ytri aðstæðna í öðrum löndum. Menn verða að hafa það í huga að réttur til dvalar hér á landi, hvort sem það er á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða á grundvelli mannúðarsjónarmiða, er beintengdur við ýmis annars konar réttindi sem kalla á ríkisútgjöld og ákveðna þjónustu stjórnvalda, Íslendinga, við viðkomandi einstakling. Það þarf a.m.k. að skoða það hvort menn geti verið að framlengja slík réttindi, rétt til slíkrar þjónustu, með því að hoppa úr kerfi alþjóðlegrar verndar yfir í kerfi mannúðarsjónarmiða að einhverju leyti. Ástæðan fyrir þessu öllu og þessari breytingartillögu, ástæðan fyrir því að menn vilja koma skikki á þetta — ég held að allir séu sammála um það og menn þurfa ekkert að velkjast í vafa um það eða fara í felur með það — er auðvitað ekki sú að mönnum sé illa við útlendinga eða illa við að fólk komi hingað, alls ekki. Vandinn er kostnaðurinn og álag á innviði og það er það sem þetta frumvarp og umræða um hælisleitendur almennt gengur út á. Móttaka hælisleitenda þarf að vera sjálfbær í einhverju samhengi og hún er það auðvitað ekki og hefur ekki verið það eins og hún hefur verið hingað til. Hún var það hér í gamla daga þegar við tókum með skipulögðum hætti á móti flóttamönnum í samstarfi við Alþjóðaflóttamannaráðið; menn tóku á móti hópum með skipulagi og höfðu fyrir fram skilgreind markmið og ákveðinn fjölda á hverju ári. En eins og þetta hefur verið þá má öllum vera ljóst að stór hluti þeirra sem hingað leita er í raun ekki flóttamenn eins og menn hafa þekkt þá hingað til, eða síðustu 50 árin, heldur miklu frekar einstaklingar sem fara á milli landa í Evrópu til að elta uppi hentugt velferðarkerfi og þjónustu sér til handa. Það er algerlega ástæðulaust að fara eitthvað í grafgötur með það að þessu frumvarpi er ætlað að stemma stigu við því að einhverju leyti. Ég hef kannski áhyggjur af því að áhrifin verði ekki nógu mikil af þessu.

Auk þess sem ég hef þegar nefnt, sem mér finnst svolítið draga úr áhrifamættinum, vil ég nefna þennan nýja flokk sem er umborin dvöl. Þetta er þekkt fyrirbæri í sumum löndum í Evrópu þar sem mönnum hefur verið skipað í þennan flokk, mönnum sem falla bersýnilega ekki undir skilyrði þess að fá dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða heldur bara vegna þess að það er erfitt að flytja þá til síns heimalands eða þeir hafa borið einhverju öðru við. Þá hefur verið flokkur sem heitir umborin dvöl. Það hefur jafnvel kannski ekki einu sinni verið lagalegt fyrirbæri í sumum löndum heldur hefur það bara verið þannig í framkvæmd að menn hafa látið hjá líða að sækja að fólki frá tilteknum löndum, nágrannalöndum, sem hefur dvalið lengi í þessum löndum. Ég hef ekki alveg kafað ofan í það hvernig raunverulegur munur verður á þessum hópum, þ.e. hópnum sem fær að vera hér í umborinni dvöl og þeim sem fá að vera hér á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þetta er framkvæmdaratriði og lagatæknilegt atriði sem einhverjir aðrir þekkja kannski betur, hvernig það mun verða. En ég nefni það bara hér að það er hætta á því að þessi nýi flokkur verði til þess að ekki dragi úr fjölda þeirra sem hér dvelja, sem koma hingað fyrst til að óska eftir alþjóðlegri vernd en dvelja hér í kjölfarið til lengri tíma og öðlast þar með réttindi í heilbrigðiskerfinu. Í því sambandi vil ég vekja athygli á máli sem hæstv. heilbrigðisráðherra mælti fyrir fyrir nokkrum dögum sem felur í sér styttingu þess tíma sem menn sem hingað flytja þurfa að bíða til að komast inn í íslenskt heilbrigðiskerfi. Hingað til hefur það verið þannig að menn hafa þurft að vera hér í sex mánuði til að vera gjaldgengir inn í íslenska heilbrigðisþjónustu en í frumvarpinu er kveðið á um styttingu niður í þrjá mánuði. Ég gerði athugasemdir við þessa styttingu við framsögu hæstv. heilbrigðisráðherra um málið og spurði hana sérstaklega hvort ekki væri miklu frekar tilefni til að lengja þennan tíma í eitt ár. Ég heyrði ekki annað en að hæstv. heilbrigðisráðherra væri opin fyrir því að hv. velferðarnefnd myndi skoða það sérstaklega og það mun ég svo sannarlega gera í þeirri nefnd. Allt tengist þetta nefnilega saman og litlar breytingar, t.d. í félagsþjónustunni, í velferðarkerfinu, geta haft mjög mikil áhrif á útlendingamálin og það verður að líta á allar breytingar og löggjöfina á öðrum sviðum í samhengi við þau mál. Því miður er það orðið þannig að menn komast ekki hjá því að máta löggjöf um heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu við lög um útlendinga á hverjum tíma.

Mig langaði svo að segja hér rétt í lokin að það liggja fyrir breytingartillögur, önnur frá minni hluta hv. allsherjar- og menntamálanefndar, hv. þm. Snorra Mássyni, þar sem hann leggur fram ágæta breytingartillögu, og hin er breytingartillaga frá hv. þm. Brynjari Níelssyni sem gengur að mínu mati aðeins lengra og er að mörgu leyti líka mjög ásættanleg. Ég hef velt því fyrir mér og spurði hv. þingmann um það en hann gat ekki svarað því öðruvísi en að hann væri orðinn svo mjúkur með aldrinum. Hann gerir greinarmun á sviptingu alþjóðlegrar verndar, annars vegar ef útlendingur er hættulegur öryggi ríkisins, eða hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarleg afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu, eða hann hefur verið dæmdur fyrir afbrot sem ógna allsherjarreglu og almannaöryggi, og við myndum jafnvel fella þar undir smáglæpamenn sem stunda búðahnupl sem skipulagða starfsemi — ég myndi telja að svo væri en dómstólar gætu auðvitað haft aðrar skoðanir á því. En í þessari breytingartillögu er kveðið á um að það skuli afturkalla vernd slíkra einstaklinga en hins vegar er kveðið á um það í sömu breytingartillögu að það sé bara heimilt að svipta menn alþjóðlegri vernd sem hlotið hafa endanlegan dóm fyrir kynferðisbrot, þar sem refsing við brotinu er fangelsi í ekki skemur en eitt ár, og manndráp og líkamsmeiðingar, þar sem refsing við brotinu er fangelsi í allt að 16 ár. Ég verð að segja það, virðulegur forseti, að mér finnast þessi brot sem hér eru tiltekin, morð og kynferðisafbrot — með fullri virðingu fyrir öryggi ríkisins held ég að almenningur myndi líta á brot af þessu tagi gegn einstaklingum sem jafnalvarleg ef ekki alvarlegri og að slíkt ætti skilyrðislaust að varða sviptingu alþjóðlegrar verndar, þannig að það sé ekki bara heimilt að svipta heldur skylda. Ég velti því fyrir mér, ef hv. þingmaður gerir það ekki sjálfur, tillöguflytjandi, að leggja fram breytingartillögu við þessa breytingartillögu til að skerpa á þessu. En báðar þessar breytingartillögur eru ágætar að mínu mati.

Að lokum vil ég nefna það, af því að hér hefur verið fjallað um alþjóðasáttmála, og það er eins og jafnan að menn fara undan í flæmingi og einhvern veginn koðna ofan í gólfið þegar alþjóðasáttmálum er veifað. Það er þannig að margir hv. þingmenn telja alþjóðasáttmála raunverulega lögum æðri, jafnvel æðri stjórnarskránni, stjórnskipunarlögum. En það er auðvitað ekki þannig og menn eiga ekkert að vera feimnir við að nefna það og skoða það ef menn vísa í alþjóðasáttmála, eins og lög um útlendinga gera, vísa í flóttamannasamninginn og fleiri samninga — það er gert þannig í lögum og þannig er það að sjálfsögðu ígildi laga. En ég hvet stjórnvöld, og menn mega ekki vera feimnir við það, til þess að hefja umræðu og hafa frumkvæði að því, ef menn eru ósammála einhverju í alþjóðasáttmálum, í samstarfi á erlendri grundu, að breyta þessum alþjóðasáttmálum. Menn eiga þá að tala þannig á alþjóðavettvangi að það þurfi að breyta þeim. Það hef ég sjálf gert. Ég gerði það sjálf í embætti dómsmálaráðherra á sínum tíma á þeim vettvangi þar sem ég hafði tök á að ræða þessi mál og heyrði ekki annað en að mikill hljómgrunnur væri fyrir því að endurskoða þyrfti þessa flóttamannasamninga í ljósi þróunarinnar sem þá var. Ef menn eru hræddir við þetta þá vil ég benda á ágætisframtak, ágætisframmistöðu, hæstv. dómsmálaráðherra í dag. Ég verð að viðurkenna að það kom mér eiginlega á óvart í desember þegar ég las af því fréttir að hæstv. dómsmálaráðherra hefði setið fund með öðrum dómsmálaráðherrum í Evrópu og verið þar að véla um breytingu á sjálfum mannréttindasáttmála Evrópu sem ekki hefur mátt anda á hingað til. Það hefur ekki mátt anda á hann hér í mörg ár. Ég hef meira að segja fengið bágt fyrir að benda á fráleita túlkun Mannréttindadómstólsins á þessum sáttmála sem hefur verið með afskaplega skapandi hætti og framúrstefnulegum. Ef það er raunverulega orðið þannig að menn þori ekki að anda á dómstólinn — sem mjög margir í útlöndum þora að gera, þótt menn þori ekki að gera það hér á landi — þá er ekkert annað en að bara breyta mannréttindasáttmálanum ef lýðræðislega kjörnir fulltrúar telja að menn séu farnir yfir strikið og farnir að misnota sáttmálann í annarlegum tilgangi eða í pólitísku ati sem þekkist frá Mannréttindadómstólnum í Strassborg. Í þessu tilfelli eru það Bretar sem hafa haft forgöngu um það að setjast niður og ræða mögulegar breytingar á mannréttindasáttmálanum og þeir boðuðu til þessa fundar. Það var ánægjulegt að sjá að hæstv. dómsmálaráðherra tók þátt í því og styður þá vegferð sem menn eru að hefja við að ráðast í breytingar á mannréttindasáttmálanum. Það er vel að merkja einmitt vegna ákvæða um brottvísun hælisleitenda og þeirra sem hafa fengið vernd vegna glæpa í gistiríkinu. Það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þeim viðræðum.