útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir ágæta ræðu um hennar sýn á þetta mál, bæði frumvarpið og breytingartillögur meiri hluta og minni hluta; þetta var góð yfirferð. Það er kostur að hafa hér í þingliðinu löglært fólk sem þekkir kerfið vel og hefur m.a. gegnt embætti dómsmálaráðherra og fjallað um þessi mál á víðum grunni. Líkt og í andsvari mínu við hv. þm. Jens Garðar Helgason vil ég halda til haga þeim fókus sem mér finnst skipta svo miklu máli að við höldum hér í þessum sal. Í frumvarpinu erum við að tala um 0,2–0,5%, sýnist mér á þeim tölum sem voru kynntar nefndinni, af þeim sem hingað koma og leita alþjóðlegrar verndar, sem myndu falla undir þennan lið eða afturköllunina.
Mig langaði að beina fyrirspurn til hv. þingmanns, herra forseti: Það kom fram í vinnu nefndarinnar að um leið og við færum að telja upp afbrotaflokkana væri hætta á því að dómstólar færu að túlka málið þrengra heldur en það er, og kannski, eins og í tilfelli lögreglunnar, að taka ákvarðanir um brottvísanir í sambandi við þetta þar sem menn hefðu kannski ekki endilega hlotið endanlegan dóm en samt talið mikilvægt að koma þeim úr landi sem fyrst. Mig langar kannski að heyra álit hv. þingmanns á því, eins og til dæmis kemur fram í breytingartillögu hv. þm. Brynjars Níelssonar, hvort ekki sé hætta á að við þrengjum málið of mikið um leið og við byrjum að telja upp þessa brotaflokka. Ég vek athygli á því, sem kom fram í framsögu minni, að þegar við tölum um „ítrekuð brot“ er t.d. átt við endurtekin brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni, þjófnaðarbrot og slíkt. En við erum áfram að tala um þessi alvarlegu brot sem eru skilgreind (Forseti hringir.) með ýmsum hætti í lögum, að þau séu án vafa ástæða til að afturkalla þetta. En ég spyr hvort við þrengjum þetta ekki of mikið ef við förum að telja þetta upp.