útlendingar.
Virðulegur forseti. Af því að hv. þm. Sigríður Á. Andersen minntist aðeins á breytingartillögu mína þá má kannski túlka það þannig að það sé ekki skylt heldur heimilt þó að menn hafi framið mjög alvarleg brot eins og kynferðisbrot, manndráp og alvarlegar líkamsmeiðingar, en í fyrri hluta efnismálsgreinarinnar er „afturkalla skal“ ef gildar ástæður eru til að álíta útlending hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot. Þarna gætu þessi brot fallið undir þetta. Ástæðan fyrir að það er „heimilt“ í þessari setningu hjá mér er vegna þess að það eru önnur brot talin neðst sem kannski væri óþarfi að gera beinlínis að skyldu. Það var hugsunin með þessu. En það sem er kannski aðalatriðið með þessari breytingartillögu, og ég spyr hvort þingmaðurinn sé sammála því, er að koma þessum sjónarmiðum á framfæri, koma þessu til umræðu aftur í nefndinni til að fara yfir þetta vegna þess að það er hætt við því að þessar breytingar á útlendingalögum missi marks ef þetta er ekki nógu skýrt. Það verður þá of matskennt og matið verður alltaf einhvern veginn þannig að menn hiki við að afturkalla. Í versta falli er farið að búa til, eins og gert er ráð fyrir í breytingartillögu frá meiri hlutanum, að menn fái dvalarleyfi í staðinn. Getum við hv. þingmaður ekki verið sammála um það að fara vel yfir þennan texta og laga þá til eftir því sem hentar hvað þetta varðar?