útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég tel að þessi breytingartillaga myndi ekki versna við yfirferð hv. allsherjar- og menntamálanefndar t.d. og ég held að það væri fullt tilefni til þess að senda málið aftur inn í nefndina á milli umræðna þótt ekki væri nema bara til þess einmitt aðeins að rýna þetta. Ég fellst á það sem hv. þingmaður hefur bent á, þetta með skylduna eða heimildina. Hér eru tveir málsliðir í einni efnismálsgrein sem kannski renna svolítið saman. Hér er síðan vísað sérstaklega til 232. og 233. gr. almennra hegningarlaga sem er ákvæðið um brot gegn nálgunarbanni, ef ég man rétt, og refsivert brot sem felst í hótunum um refsiverðan verknað.
Það má líka velta því fyrir sér, og ég fékk hér í andsvari spurningu um að tiltaka ýmis brot, einmitt af hverju það kemur allt í einu brot gegn nálgunarbanni þarna. Ég veit að ég stend hér fyrir svörum en það væri kannski fróðlegt ef hv. þingmaður gæti útskýrt það af hverju nálgunarbannsbrot er tiltekið hérna sérstaklega. Það sem mér er meira umhugað um er að svona ákvæði sem fela í sér refsikennd viðurlög, ég tala nú ekki um ef það eru refsingar, séu bara skýr. Ég meina, hvað er það nákvæmlega sem veldur afturköllun alþjóðlegrar verndar og hvenær er það heimilt? Ég held að efnismálsgrein þessarar breytingartillögu þoli alveg aðeins yfirferð til að skerpa aðeins á því að mínu mati.