157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:22]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skýringuna á því af hverju nálgunarbannið er. Núna skil ég það, nú bara átta ég mig á því að hv. þingmaður leggur þetta fram vegna þess að þótt menn hafi kannski ekki þorað að nefna það hér en þá eru einmitt þessi heimilisofbeldisbrot kannski í ríkari mæli eða hafa a.m.k. verið þekkt og kannski hlutfallslega fleiri meðal þeirra sem hafa óskað eftir alþjóðlegri vernd og dvelja hér á þeim forsendum heldur en annars. Ég þekki ekki tölfræðina í því en það getur verið að þingmaðurinn hafi haft það í huga og þá er auðvitað alveg ágætt að nefna það. Þótt ég telji að það sé alveg hægt að fella þessar greinar almennra hegningarlaga undir ákvæðið sem væri bara orðað með vísan til refsinga eða viðurlaga sem liggja við brotunum — ég veit það ekki, þetta er kannski aðeins til þess að draga þennan málaflokk sérstaklega fram í þessum tilvikum. Það kann að vera að hv. allsherjar- og menntamálanefnd fallist á það en, eins og ég segi, ég mun a.m.k. mælast til þess að þetta mál fari aftur til nefndar á milli 2. og 3. umræðu.