157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:24]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Herra forseti. Hér erum við að fjalla um mjög mikilvægt mál fyrir okkur Íslendinga. Sjálfur sit ég í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og hef fjallað um málið þar og nú er það komið hingað til þingsins til umræðu. Það er kannski ágætt að rifja það upp hér að þetta mál var sett hér inn fyrir jólin í miklu offorsi eftir að það var búið að semja um dagskrá og búið til pólitískt mál úr því að það hafði ekki verið tekið fyrir. En síðan er að nálgast 1. febrúar og þá fyrst kemur málið hingað til þingsins til umræðu. Þetta eru sérstök vinnubrögð sem mér finnst ekki góð.

Þetta mál hefur verið töluvert viðkvæmt í samfélaginu en er samt mjög mikilvægt fyrir útlendingalöggjöfina okkar og varðar það við hvaða aðstæður þeir sem hafa fengið alþjóðlega vernd geti misst hana. Það er ekki eðlilegt að menn sem hafa fengið hér vernd geti bara verið hér með einhvers konar frípassa. Hér kom fram í umræðunni að hún væri stundum skautuð. Sjálfur tel ég að hin almenna umræða hjá meginþorra almennings sé ekki skautuð. Vissulega hefur orðið ákveðin svona umskautun eða umpólun hjá ákveðnum stjórnmálaöflum í samfélaginu og það hefur gerst tiltölulega hratt. Við því er bara hægt að segja að batnandi mönnum er best að lifa; þegar menn sjá ljósið er ákveðið sjálfstraust sem fylgir því að átta sig á því að við höfum verið á rangri leið. En það er samt gott að rifja upp söguna. Það er ekki lengra síðan en 2024 að formenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar vöruðu við útlendingafrumvarpinu sem þá var til umfjöllunar, eins og það lá fyrir, og sögðu að það stæðist hvorki eigin markmið um mannúð né skilvirkni og gæti haft skaðleg áhrif á fjölskyldur, börn og samfélagslegt traust.

Það er ekki langt síðan þessi orð féllu, herra forseti. Hér hefur orðið algjör umskautun hjá þessum tveimur flokkum. Þeir gátu ekki greitt atkvæði með útlendingafrumvarpinu 2024 og breytingunum þar en núna kemur fram frumvarp sem er aðeins breytt og er samt töluvert harðara en það sem — svo ég vísi nú aftur í það, herra forseti, með leyfi herra forseta, að formenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar vöruðu við því að samþykkja útlendingafrumvarpið eins og það lá fyrir því að það stæðist hvorki eigin markmið um mannúð né skilvirkni og gæti haft skaðleg áhrif á fjölskyldur, börn og samfélagslegt traust.

Það frumvarp sem liggur fyrir núna er harðara meira og minna að öllu leyti. Hér hefur orðið jákvæð umskautun og í stað þess að þvæla sig frá því er bara gott að segja að þarna hefðu menn betur gripið fyrr í taumana því ekki lá á Sjálfstæðisflokknum og örugglega ekki, held ég, á Miðflokknum á þessum tíma, svo ég nefni það nú bara líka. Það skiptir nefnilega máli að sagan sé skoðuð, hverjum er hægt að treysta og hverjir eru eins og vindhanar. Ég ítreka það að það hefði verið gott að vinna með nefndinni að þessum málum. Það hefur verið töluverður samhljómur og menn eru sammála um frumvarpið. Við verðum að þora að ræða þessi mál. Skipulagðri glæpastarfsemi vex fiskur um hrygg og Schengen-löndin vilja að við samræmum lög og reglur miðað við það sem þau ríki hafa. Það kemur pressa auðvitað þaðan líka til að við grípum í taumana.

Það sem hefur gerst með Evrópu sérstaklega, og við erum auðvitað hluti af Evrópu, er að velmegun í heiminum hefur aukist verulega jafnt og þétt. Það þýðir að jafnt ríkari og fátækari lönd standa mun betur. Þeir sem höfðu einn dollara á dag í laun eru miklu færri núna heldur en fyrir tíu árum. Ég segi þetta vegna þess að þetta skýrir að ákveðnu leyti þá stöðu sem við erum í í dag. Þar sem hafa geisað stríð og einhvers konar hamfarir, fólk sem býr í þeim löndum er almennt betur stætt en áður og hefur því efni á því að flytjast á milli heimshluta. Svo kemur auðvitað einhver iðnaður með þessu, flóttamannaiðnaður, að menn eru með einhverjar skektur að sigla yfir Miðjarðarhafið og annað slíkt sem er auðvitað ólögleg starfsemi. Það er þrýstingur á öll kerfi Evrópu um að taka við fleira fólki, sem vissulega er margt í neyð, en það er líka fólk sem er þarna úti að leita að betra lífi og er ekki endilega í neyð, svona efnahagsflóttamenn, þeir eru alveg til líka. Þessi aukna hagsæld í heiminum hefur hjálpað fólki að geta flust á milli heimshluta þótt fátækt sé.

Með þessu frumvarpi sem hæstv. dómsmálaráðherra er að leggja hér fram er ljóst að það er verið að senda skýr skilaboð um að brotamenn með vernd séu ekki stikkfríir, séu þeir einu sinni komnir með alþjóðlega vernd, og það er gott. En bara til að það sé sagt líka að með þessu frumvarpi, og þeim viðbótum sem hafa komið við frumvarpið frá bæði hv. þm. Snorra Mássyni og Brynjari Níelssyni, er ekki verið að draga í efa rétt flóttafólks til verndar; að fólk geti flúið stríð og ofsóknir. Hér er verið að skoða ákveðinn raunveruleika sem hefur birst okkur í Evrópu og við höfum vítin til að varast þau. Það er óþarfi að fara ofan í hvern poll og hverja gryfju sem önnur ríki í Evrópu hafa farið ofan í ef við getum forðast það. Við eigum ekki að senda fólk aftur til landa þar sem það á von á dauðarefsingu en við verðum að búa til einhverja millileið.

Virðulegur forseti. Réttarríkið byggir líka á því að samfélagið hafi einhver tæki til að bregðast við þegar einstaklingur sem nýtur alþjóðlegrar verndar brýtur af sér með þeim hætti sem ógnar öryggi, allsherjarreglu og almannaöryggi. Hversu langt á að ganga til að verja réttindi einstaklings sem nýtur verndar ef sá einstaklingur sýnir í verki að hann virðir ekki grundvallarreglur samfélagsins? Hér held ég að mikill meiri hluti þingsins sé sammála og samfélagið líka. En síðan kom breytingartillaga frá hv. þm. Brynjari Níelssyni sem mér finnst verðugt að skoða. Þar er sérstaklega einn þáttur sem er sterk breyting, að það verði einhvers konar skylda að taka aftur alþjóðlega vernd við ákveðin brot, að það verði ekki heimild heldur skylda. Það er, held ég, ákveðin forvörn í því að þeir sem hljóta alþjóðlega vernd viti það að ef þeir brjóta af sér með ákveðnum hætti þá missa þeir verndina. Ég held að ef maður sjálfur lenti í einhverjum hörmungum á Íslandi og við þyrftum að flýja, þá þætti mér það ekki vera óeðlilegar kröfur að ég gæti ekki brotið af mér í því landi sem tekur á móti mér með einhverjum hætti án þess að það hefði afleiðingar, og hvað þá ef brotin eru mikil, að maður missi þá vernd sem maður hefur fengið.

Í tillögu hv. þm. Brynjars Níelssonar er hnykkt á því að þegar um ákveðin mjög alvarleg tilvik er að ræða eigi stjórnvöld ekki að hafa eitthvað laust í reipunum og ekki að málsmeðferð fari eftir túlkun eða pólitískri stemningu. Því miður hefur það stundum einkennt samfélagið okkar að það er einhver stemning í samfélaginu sem kallar á, og meira að segja mögulega hjá dómstólum, að menn fylgi einhvers konar stemningu í stað þess að lög gildi. Það þarf að vera skýrt lagaákvæði um að afturkalla skuli vernd þegar gildar ástæður eru til að álíta viðkomandi hættulegan öryggi ríkisins, hættulegan samfélaginu vegna alvarlegs brots eða þegar hann hefur verið dæmdur fyrir afbrot sem ógna allsherjarreglu og almannaöryggi. Þetta eru ekki að mínu mati ósanngjörn skilaboð að senda út í lögum en auðvitað þarf að ræða þetta. Þessi breytingartillaga birtist bara núna í dag. Hún er ekkert svakalega dramatísk, eins og höfundur tillögunnar hefur sagt, að mér finnst. Hún er þess eðlis að það sé auðveldara fyrir stjórnvöld að taka ákvarðanir um ákveðin brot. Ef það er bara heimild en ekki skylda þá vitum við ekki nákvæmlega hvort þessir einstaklingar eigi að fá afturköllun á vernd eða ekki.

Hér kom fram í máli, að mig minnir, hv. þm. Sigríðar Á. Andersen og ég sá að hv. þm. Víðir Reynisson kinkaði kolli við því þegar talað var um að það væru mögulega tíu einstaklingar á hverju ári sem gætu fallið í þennan flokk að missa alþjóðlega vernd sökum þeirra brota sem þeir hafa framið hér á landinu. Staðan í dag er þannig að það eru hér menn með alþjóðlega vernd sem hafa brotið af sér með þeim hætti að þeir ættu að missa verndina ef þetta frumvarp verður að lögum. Ég vil bara hvetja okkur í hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að taka fyrir þessa breytingartillögu hv. þm. Brynjars Níelssonar. Ég ætla að vísa hér í breytingartillöguna því að hér hefur verið svolítið rætt um orðin „ítrekuð brot“, að þau falli brott. Í 2. gr., b-lið, breytingartillögunnar stendur, með leyfi forseta:

„Heimilt er að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef aðrar gildar ástæður eru til. Þetta á m.a. við ef útlendingur hefur gerst sekur um alvarleg eða ítrekuð brot á hegningarlögum, þ.m.t. brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess og brot gegn valdstjórninni.“

Það er ekki girt fyrir það að ítrekuð brot valdi því að menn geti misst alþjóðlega vernd. Hér í umræðunni áðan, sem hefur verið virkilega góð, kom hv. þm. Brynjar Níelsson í andsvör við hv. þm. Sigríði Á. Andersen og þar var þetta aðeins rætt. Hv. þm. Sigríður Á. Andersen var með bollaleggingar um það að það væri ekki heimild heldur skylda að menn misstu alþjóðlega vernd, en þetta er auðvitað einhvers konar útfærslumál. Ég held að það sé ekki rétt að ganga þannig fram að — það þarf alla vega að vera skýrt að smávægileg brot leiði ekki sjálfkrafa til afturköllunar alþjóðlegrar verndar. Ég held að við viljum ekki vera með svona íslensk — ég ætla ekki að segja sjaríalög en íslensk lög sem eru óeðlileg gagnvart borgurunum.

Þessi breytingartillaga hv. þm. Brynjars Níelssonar er virkilega góð. Ég held að það sé ekki nokkur þingmaður sem hefur mótmælt þessari tillögu hér í þingsal þannig að ég geri ráð fyrir því að hún komi inn til okkar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og við fjöllum um málið þar, hvernig sem það endar. Auðvitað er Sjálfstæðisflokkurinn ekki í meiri hluta en miðað við það að bæði Samfylkingin og Viðreisn, sem skiluðu auðu þegar síðast var kosið um útlendingalög, eru nú að stíga þessi mikilvægu góðu skref og ég held að Flokkur fólksins verði ekki til trafala í þessu máli, og ég veit að Miðflokkurinn verður það ekki, ætti að vera rými til þess að laga frumvarpið og koma því svo til betri manns og alla vega fá álit einhverra sem geta komið fyrir nefndina. Það er alveg ljóst að við Íslendingar erum töluvert á eftir nágrannaþjóðum okkar í lagasetningu og líka bara í stöðunni. Þegar við skoðum hvernig þessum málum er háttað í Evrópu sjáum við að þar er skipulögð glæpastarfsemi víða en hún er reyndar hér á Íslandi líka. Það eru fjölmargir hópar sem stunda skipulagða glæpastarfsemi. Þetta frumvarp gæti nýst okkur sem ákveðin forvörn. Ég veit að það eru þingmenn í allsherjar- og menntamálanefnd sem eru mjög fróðir um alþjóðlega glæpastarfsemi og vita að það er hægt að búa þannig um hnútana að við gerum henni erfiðara fyrir að starfa.

En aftur að þessu frumvarpi sem er til umræðu og breytingartillögunni. Breytingartillagan talar þarna um skyldu, bætir því við, í stað þess að það sé bara heimild, sem ég tel að sé mikil bót. Í breytingartillögunni koma fram ákveðnir þættir sem eru svona viðmið í þessu öllu saman og þetta má allt slípa til og pússa. Ég er ekki sjálfur búinn að geta farið gjörsamlega yfir alla þá lagabálka sem eru tilgreindir í tillögunni, eins og hér kom fram áðan með nálgunarbann og annað slíkt. Það eru hugmyndir á bak við það hvers vegna nálgunarbann er einn af þeim brotaflokkum sem taldir eru upp. Þetta þarf umræðu og til þess er þingið.

Ég er viss um að þetta frumvarp sem liggur hér fyrir, sem er gott skref í rétta átt, og það er breyting frá lögum sem voru samþykkt fyrir ekki löngu síðan og þetta veitir ákveðinn stífari ramma utan um þetta þegar fólk er komið með alþjóðlega vernd. Það kann að hljóma kaldranalegt að menn séu að tala um að svipta fólk alþjóðlegri vernd en ásóknin inn í velferðarríki eins og Ísland, vestræn ríki, er í raun botnlaus og það verður að vera einhver skynsemi í því hvað við erum að gera. Ef við opnuðum á allt hér þá gætum við tekið við fólki sem vissulega er í ákveðnum nauðum að flýja hörmungar, við gætum tekið við þúsundum, en það myndi setja landið á hvolf. Því fyrr sem við horfumst í augu við það að ef við erum tilbúin að gefa eftir töluvert af lífsgæðum hér, sem ég held að menn séu almennt ekki tilbúnir til að gera — við þurfum að geta tekið á móti þessu fólki þannig að vel sé og líka þannig að þeir sem brjóta af sér missi þennan rétt sinn, missi alþjóðlega vernd, því þeir smita líka yfir á hina sem koma hingað og leggja eitthvað í púkkið til samfélagsins. Ef ég færi sjálfur sem flóttamaður eitthvert og einhver færi með mér og ég væri að brjóta stöðugt af mér þá myndi það hafa ákveðin smitáhrif á hinn Íslendinginn sem kæmi með mér. Þetta er réttlátt og gott fyrir alla og ég hvet okkur í nefndinni til að taka þessa breytingartillögu og skoða hana vel, setja hana mögulega inn í frumvarpið. Mig grunar að þetta verði alla vega rætt að einhverju leyti þó að Sjálfstæðisflokkurinn sé í minni hluta í nefndinni.