157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:44]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Ég hjó sérstaklega eftir því að hv. þm. Jón Pétur Zimsen benti á að við vildum ekki ganga kannski of hart fram þegar kæmi að minni háttar glæpum. Það þarf auðvitað að sýna einhverja mennsku líka. Þá er ég að hugsa um til að mynda umferðarlagabrot og slíkt. Það er kannski ekki sjálfkrafa ávísun á að vera vísað úr landi. Hins vegar hefur borið á því að þeir sem eru hér á bið, eru að sækja um alþjóðlega vernd, eru jafnvel að leggja sig fram um einhvers konar smábrot, þjófnað, vilji kannski vera gómaðir. Til hvers? Til að lengja ferlið þar sem viðkomandi er haldið hér uppi af því að það er verið að bíða eftir að málið sé tekið fyrir. Þurfum við ekki einhvern veginn að ná yfir það, áður en fólk fær vernd, að það hafi afleiðingar þó að það brjóti eitthvað smávægilega af sér, það sé í rauninni ekki hvati til að brjóta af sér? Ef þú brýtur svona smávægilega af þér þá er það ekki ávísun á að þú getir ekki fengið vernd. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi hugsað þennan vinkil eitthvað frekar.

Svo er annað sem kemur fram í frumvarpinu varðandi það að fólk sé komið hér með vernd einungis vegna þess að ríkið hafði ekki undan að afgreiða umsóknirnar. Það var samt enginn sem virðist hafa hugsað: Er þá ekki komið gott? Erum við ekki komin aðeins of langt? Ég spyr bara: Liggur það fyrir? Er þetta enn þá svona? Er búið að ræða það í hv. allsherjar- og menntamálanefnd? Er fólk enn þá að fá hér vernd af því að við höfum ekki undan?