útlendingar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir gott andsvar. Ég veit ekki til þess að það séu önnur frumvörp af þessum meiði í pípunum. Það var náttúrlega fullt af frumvörpum sem hæstv. dómsmálaráðherra kom með hér inn í þingið þegar þing hófst í janúar sem eru annars eðlis. En þetta er stórmál — og eins og ég sagði í ræðu minni, við höfum vítin til að varast þau — sem við þurfum að taka eins föstum tökum og við getum og læra af reynslu annarra. Við erum hér með miklu mildari umræðu heldur en við sjáum nokkurn tíma í Bretlandi og í Evrópu. Þar er miklu harðari umræða. Ég held að ef við komumst hjá þeirri umræðu sé það gott. Þess vegna ætti það að finna þennan samhljóm í þinginu um þetta allt saman að hjálpa okkur að taka næstu skref og hafa þau stór.