157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:54]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir ágætisyfirferð á ýmsu úr minni ræðu og spurningu hans í lokin. Ég á kannski erfitt með að setja mig inn í hugarheim þeirra sem reyna að spinna upp einhvers konar atburðarás eða slíkt en ég held að sú atburðarás sem átti sér stað hér rétt fyrir þinglok fyrir jól sé ekki til þess fallin að auka hróður þingsins eða virðingu. Sama hvaða flokkur það er, hvort sem það er Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn, Samfylkingin, Miðflokkurinn eða hver annar, sem gerir svona, reynir einhvern veginn að dreifa einhverri athygli svona pólitískt, rétt fyrir þinglok eða bara hvenær sem er, það er komið inn með einhverja smjörklípu, það er ekki gott fyrir sóma og virðingu þingsins.

Það sést síðan hver ákafinn var í raun þegar þetta mál kemur fram núna en ekki bara á fyrstu dögum þingsins, sem mér hefði sjálfum þótt eðlilegt. Við söknuðum þessa máls í nóvember eða desember, að fá það ekki fyrr inn, við söknuðum þess. Það að ætla að mála stjórnarandstöðuna upp þannig að hún væri á móti þessu eða skrímslavæða hana með einhverjum hætti virðist bara vera ákveðinn leikur spunameistara þessara flokka og ég held að mörgum þingmönnum meiri hlutans þyki þetta óþægilegt. Þeir finna alveg hvernig er í pottinn búið. En sem betur fer er þetta liðin tíð og við erum komin hér í þingsal að ræða þetta góða mál og þessar breytingartillögur sem hafa komið. Ég bara vona að svona tilfellum fækki.