157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:57]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fínt andsvar aftur. Hvað þarf til að við höldum áfram þessa leið og stígum enn stærri skref? Við fórum í ferð til Hollands, til Haag í Hollandi, og Rotterdam og fleiri staða, þar sem við sáum bara svart á hvítu hvernig staðan er í Hollandi alla vega. Hópurinn sem er í allsherjar- og menntamálanefnd, við höfðum gott af því að fara þangað saman og sjá og upplifa þetta með beinum hætti, hvaða áhrif þetta hefur á allt samfélagið, þessi straumur flóttamanna og síðan fá einhverjir alþjóðlega vernd og aðrir ekki.

Ég held að við ættum að sýna ákveðið þor og stíga fastari og stærri skref til þess að það verði sátt í öllu landinu. Við málum ekki einhverja hópa upp sem eru komnir hingað þannig að það verði aðskilnaður á milli okkar og þeirra heldur (Forseti hringir.) að það verði þannig í pottinn búið að sem allra flestir verði sáttir við það sem er í gangi.