157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[18:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Víðir Reynisson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún var, eins og margar ræður í dag, áhugaverð en líka aftur það sem við höfum séð svo oft í dag að við erum að fara út og suður og ég á seint eftir að læra það hér á Alþingi hversu okkur gengur oft illa að halda okkur við það málefni sem við erum að ræða, heldur förum við að ræða ýmislegt annað og framtíðina og endurskoðun einhverra annarra laga og eitthvað slíkt. En þetta er bara það sem ég þarf að læra og vonandi tekst mér það einhvern tímann.

En hv. þingmaður nefndi fólk sem væri, vegna þess að það væri farið að hafa það betra, farið að flýja og koma hingað og eitthvað slíkt. Það er ágætt að rifja það upp að það er auðvitað fjöldi landa sem fólk kemur frá, sækir um alþjóðlega vernd og fær höfnun vegna þess að ástandið í heimalandinu er með þeim hætti að það telst svokallað öruggt land og viðkomandi er bara sendur aftur. Þetta kemur í bylgjum og nýjasta svona dæmið er kannski Venesúela þar sem ástandið er metið með þeim hætti. Fleiri lönd hafa komið inn í þetta.

En það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann að, áður en ég gleymi því, er, af því að ég er nýr á þingi og er enn að læra þingsköpin og maður er að velta þessu fyrir sér, að þingmanninum varð tíðrætt um það og það kom líka fram í andsvörum að allsherjar- og menntamálanefnd myndi fjalla um breytingartillögurnar í þessu. En ef ég skil þetta rétt, og þess vegna langar mig að vita hver tilgangurinn væri með því að fara með þetta aftur í nefnd á milli umræðna, þá eru hér þrjár tillögur sem fara í atkvæðagreiðslu að lokinni 2. umræðu, sem er aðalumræðan í þinginu, og ef þær eru samþykktar er ekkert um að ræða. Þá er bara búið að samþykkja þær og þá þarf ekki að ræða þær meira. En ef þeim er hafnað er ekkert að ræða heldur, því það er búið að hafna þeim. Mig langar að fá sýn hv. þingmanns á hver tilgangurinn er með því að fara með málið aftur í nefnd milli umræðna.