157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[19:01]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir gott andsvar. Til að byrja með varðandi þetta að fólk hafi það betra og fari þess vegna á milli svæða, þá hefur það aukist líka í löndum þar sem er ófriður. Það er þekkt t.d. í Svíþjóð að fyrir stríðið í Úkraínu var töluvert mikið af Úkraínumönnum þar og þeir hafa sjálfir síðan bara getað flust hingað og þangað þaðan, ekki frá Úkraínu heldur eru þeir bara með úkraínsk vegabréf. Um leið og það opnast gátt til betra lífs einhvers staðar er það bara eðlilegt og mannlegt að menn reyni að komast á staði þar sem þú getur brauðfætt þig og þína fjölskyldu frekar. Það er ekkert skrýtið.

Síðan að seinni spurningunni um að þetta komi aftur fyrir nefndina þá er ég líka nýr á þingi og mögulega er það illframkvæmanlegt, ég er ekki viss um það. Ég hefði viljað og það er hægt að ræða það í nefndinni alla vega til að ýta við umræðunni og þess vegna er gott að það sé þannig. Svo náttúrlega á endanum ætti bara allur þingheimur að fara með fingurinn á græna takkann og samþykkja þessa breytingartillögu. Það væri náttúrlega eina vitið í þessu. Þess vegna held ég að það sé gott að hafa samtal áður en farið er í þá atkvæðagreiðslu innan hv. allsherjar- og menntamálanefndar þannig að nefndin geti alla vega rætt það þar, því að þetta er náttúrlega frumvarp sem liggur fyrir þeirri nefnd.