157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[19:03]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Víðir Reynisson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta er áhugavert og eins og ég segi er maður að læra þingsköpin og þetta allt saman. En það er minn skilningur að málið sé núna í 2. umræðu, frumvarpið er með breytingartillögum frá meiri hluta, 1. minni hluta og síðan frá hv. þm. Brynjari Níelssyni og öll þessi atriði verða tekin til afgreiðslu undir því þannig að nefndin getur í sjálfu sér ekki fjallað um málið fyrr en eftir það. Það stendur ekkert á okkur að taka þetta til nefndar ef þörf er á því en ég er bara að velta þessu fyrir mér í ljósi þess líka að við erum eiginlega sammála um þetta allt saman og bara spurning hvaða leið við ætlum að fara, og hvort það sé ekki bara réttara að reyna að klára þetta og koma þessu beint í 3. umræðu. Það eru fleiri mál um málið að koma á dagskrá en hvort það sé ekki rétt að við reynum bara að klára þetta sem mest í þessari umræðu og síðan förum við með það í 3. umræðu og atkvæðagreiðslu og gerum þetta að lögum eins hratt og hægt er.