157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[19:21]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Mig langaði að spyrja hv. þm. Jón Gunnarsson örlítið út í það — af því að hann ræddi aðeins breytingartillögu frá hv. þm. Brynjari Níelssyni. Ég er ekki alveg að átta mig á umræðunni út frá því sem hv. þm. Víðir Reynisson sagði hérna áðan, um að í raun og veru ætti bara að greiða atkvæði um tillöguna, hún þyrfti ekki að fara fyrir nefnd og annaðhvort yrði hún samþykkt eða ekki. Ég er aðeins að spyrja hvort ég sé að ná þessu rétt vegna þess að ég ætla að vekja athygli á einu: Það hefur engin tillaga frá minni hlutanum, frá því að þessi meiri hluti tók við, verið samþykkt, núll, engin. Þegar hv. þm. Jón Gunnarsson lagði hér fram breytingartillögu varðandi almannaheillafélög í 3. umræðu var sagt: Þú hefðir þurft að koma með þetta fyrr, þá hefðum við kannski getað metið þetta, hugsað þetta betur. Það voru einhverjar svona lélegar afsakanir. Núna er ekki að sjá hvort hv. þingmenn meiri hlutans ætli að samþykkja þessa tillögu. Það væri ágætt að það lægi fyrir en alla vega er mjög gott að fá þetta í 2. umræðu til þess að við getum fengið alvöruumræðu um þessa breytingartillögu eins og er búin að vera hér í þingsal.

Mig langaði að spyrja hv. þm. Jón Gunnarsson: Væri ekki sniðugast að hv. allsherjar- og menntamálanefnd tæki þessa tillögu til meðferðar í 2. umræðu? Við þurfum ekki að stöðva 2. umræðu. Við tökum þetta á meðan 2. umræða er í gangi þannig að það liggi fyrir hvernig á að vinna þetta. Með sömu rökum væri næstum því alveg eins hægt að segja: Eigum við ekki bara að sleppa því að fara með frumvörp fyrir nefndir vegna þess að við getum bara greitt atkvæði um þau? Vill meiri hlutinn það ekki helst? En það er kannski spurningin, hvort hv. þingmaður geti aðeins upplýst mig um hvort ég sé á villigötum eða hvernig staðan er.