157. löggjafarþing — 60. fundur,  28. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[19:25]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, jú, við getum sett séríslenskar reglur sem ganga jafnvel lengra en aðrar þjóðir eru að gera. Það er það sem ég var að hvetja til í ræðu minni hér áðan, þegar ég sagði að við ættum að hætta að elta aðrar þjóðir, við ættum að hugsa þetta meira út frá okkur sjálfum og vera ófeimin við að taka frumkvæðisskref sem yrðu jafnvel til eftirbreytni hjá öðrum þjóðum.

Við þurfum alltaf að gæta þó að því, virðulegur forseti, að við erum aðilar að flóttamannasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hann er sennilega einhver fallegasti sáttmáli þeirra samtaka og við þurfum auðvitað að gæta að skyldum okkar þegar kemur að þeim efnum. Þær reglur voru settar í kjölfar á seinni heimsstyrjöldinni og augljóslega voru hugsaðar í þá átt sem við getum kannski líkt við Úkraínu, ástandið sem þar hefur verið og hvernig við þá brugðumst við ásamt öðrum Evrópuþjóðum, í að opna landamæri okkar og móttöku fyrir það fólk sem var að koma frá stríðshrjáðu ríki. Þannig var þetta hugsað. En misnotkunin sem hefur verið á þessu á undanförnum árum er hrópandi og við því þarf að bregðast. Við þurfum að gera það og við þurfum að senda út mjög ákveðin skilaboð. Allar reglur sem við setjum innan ramma þess eru bara til að styrkja það að hingað komi þá fólk og fái hér skjól og hingað komi fólk sem er tilbúið að leggja til samfélagsins, er að vinna hér. Við séum ekki að ýta undir með veiku regluverki eins og var hér, með því að hafa einhvers konar segla, af því að þá kemur bara fjöldinn hingað. Saumaklúbburinn kemur þá í heimsókn til okkar.