157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

lengd þingfundar.

[10:30]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundir geti staðið lengur í dag en hvað þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? Svo er ekki og skoðast hún þá samþykkt. Forseti vekur athygli á því að rætt var um þingfundi í fleirtölu.