157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

[10:36]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir áhyggjur manna af því hvernig málsmeðferð þessa máls er, ekki síst í ljósi þess að þetta mál ætlar virðist vera að grafa undan trúverðugleika sjálfbærrar stjórnunar á fiskveiðum. Ríkisstjórnin hefur svo sem ekki staðið sig býsna vel í því þegar forstjóri Hafrannsóknastofnunar þurfti að segja af sér vegna þess að hann hafði ekki traust ríkisstjórnarinnar og ráðherra. Svo kemur þetta mál hérna inn.

En mig langar kannski fyrst og fremst að koma hérna inn og taka undir með þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins og spyrja forseta: Má búast við að fleiri þingmannamál komist hér á dagskrá? Við í Framsókn höfum lagt fram nokkur mál er lúta að því að taka á verðbólgunni, taka á fasteignalánum, sem myndu held ég vera miklu mikilvægari í umræðunni í dag þegar verðbólgan er komin í 5,2% og hefur ekki verið hærri síðan í september 2024, einhverjum mánuðum fyrir síðustu kosningar, þrátt fyrir allar sleggjur og áætlanir og plön ríkisstjórnarinnar. Ég held að það væri mikilvægara og að fólkið þarna úti (Forseti hringir.) væri að bíða frekar eftir því heldur en einhverjum hringlandahætti í því að stjórna grásleppuveiðum.