aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir spurninguna og tek undir með honum að það er auðvitað mikið áhyggjuefni að verðbólga sé að hækka. Það er hins vegar mjög mikilvægt að við rýnum þessar tölur og skoðum í grunninn hver ástæðan er. Það hefur orðið töluverð umræða um það, og kemur raunar fram í máli hv. þingmanns, að stjórnarandstaðan hafi varað við áhrifum breytinga á kílómetragjaldi og vörugjöldum af bifreiðum á vísitölu neysluverðs. Nú liggur mat Hagstofu Íslands fyrir og það kemur í ljós að áhrifin eru nákvæmlega í samræmi við það sem fjármálaráðuneytið spáði og að hækkunin sem er að verða núna á verðbólgu er vegna annarra þátta, þ.e. hækkunar á eldsneytisverðinu sjálfu og álagningar eldsneytis eða annarra slíkra þátta og álagningar á bifreiðar. Það er auðvitað slæmt þegar breytingar eru notaðar til að réttlæta hækkanir. Það er hins vegar þannig að það bendir til undirliggjandi verðbólguþrýstings og ég tek fyllilega undir það með hv. þingmanni að við þurfum að bregðast við því. Það verður ekki gert með niðurgreiðslu verðlags. Það er ekki leið til að draga úr verðbólgu heldur þvert á móti. Yfir þetta hef ég margoft farið í máli mínu hér í þinginu.
Varðandi breytingar á réttindum og skyldum opinberra starfsmanna þá er slíkt frumvarp í vinnslu í fjármálaráðuneytinu. Það er ágæt sátt innan ríkisstjórnarinnar um þær breytingar. Þær eru löngu tímabærar. Allir flokkar á þingi eru sammála því að þær þurfi að gera og þær mun þingið sjá.