157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[10:46]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Þetta var mikið furðusvar. Ég hélt alla vega að hæstv. ráðherra myndi halda sig við þá stefnu sem hefur verið ríkjandi hjá honum eða yfirlýsingar hingað til um að hann fylgdist þó með gangi mála. En nú virðist hæstv. fjármálaráðherra hættur að fylgjast með líka. Í greiningu Hagstofunnar koma ástæðurnar fyrir verðbólguhækkuninni fram og það eru nákvæmlega þær ástæður sem varað var við hér fyrir áramótin. Það er vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar og afleiðinga, fyrirsjáanlegra afleiðinga þeirra aðgerða. En ég get ekki skilið svar hæstv. ráðherra öðruvísi en svo að ríkisstjórnin kjósi að halda áfram að lifa í sínum sýndarveruleika og muni ekki bregðast við, þrátt fyrir að staðreyndirnar liggi fyrir. Svo ítreka ég spurninguna um áformin um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu. Þar segist hæstv. félagsmálaráðherra einfaldlega vera ósammála fjármálaráðherranum. Hvað verður ofan á í því?