157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[10:47]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir sína síðari spurningu. Að vísu, eins og hann virðist ekki botna í mínum svörum, botna ég ekkert í hans spurningum. Það kemur glögglega fram í greiningu Hagstofunnar hver samsetning þessara hækkana er og það sem ég var að segja var að t.d. í tilfelli breytinga á kílómetragjaldi og rekstrarkostnaði bifreiða er einn fjórði af breytingunni vegna breytinga hins opinbera, fyrirsjáanlegu áhrifin á vísitölu neysluverðs um 0,05% og varðandi vörugjöldin er um helmingurinn vegna breytinga hins opinbera. Annað verður að sækja annað og það að hv. þingmaður telji að hann hafi séð fyrir álagningarákvarðanir einkafyrirtækja finnst mér bara mjög merkilegt (Gripið fram í.) og bendir til ýmissa tenginga sem ég reiknaði ekki með að væru til staðar.

Varðandi breytingu á tengingu bóta við launavísitölu þá er það þannig að (Forseti hringir.) sé þróun bóta skoðuð aftur í tímann þá hafa bætur hækkað umfram launavísitölu undanfarinn áratug. (Forseti hringir.) Áhættan í þessu er ekki sú sem gert er svo mikið úr hér en að sjálfsögðu þarf að fylgjast vandlega með hvernig þessi þróun er. Við viljum heldur ekki gliðnun milli þessara hópa og almennra launþega.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að í seinni umferð óundirbúinna fyrirspurna er ræðutíminn ein mínúta.)