157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

viðbrögð stjórnvalda við verðbólgu.

[10:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans spurningu. Nú hef ég farið yfir það hér áður að þessi framsetning stjórnarandstöðunnar á hækkun ríkisútgjalda milli ára er allsérstök. Inni í henni eru t.d. breytingar á ÍL-sjóði sem var einfaldlega tilfærsla í bókhaldi hins opinbera, raunar lækkun á útgjöldum upp á 30 milljarða, og verðlagsbreytingar sem hafa nákvæmlega ekkert með ákvarðanir ríkisstjórnarinnar að gera, þær eru einfaldlega staðreynd. En það er hins vegar mjög mikilvæg spurning sem hv. þingmaður ber fram sem er: Hvert er planið? Hvað þarf að gera? Ég hef farið yfir það hér áður að það mikilvægasta er að ná niður verðbólguvæntingum. Menn geta auðvitað skoðað mat Hagstofu Íslands á verðlagsbreytingum milli mánaða núna með ýmsum gleraugum, en einn þáttur sem hefur drifið áfram verðbólguna, og hv. þingmaður vék aðeins að í óundirbúnum fyrirspurnum áðan, er húsnæðisliðurinn.

Húsnæðisliðurinn hefur reynst hafa töluvert mikið forspárgildi um þróun verðbólgu og verðbólguvæntinga. Það er þrátt fyrir allt ákveðið ljós í myrkrinu að þær væntingar, þ.e. sá liður, hefur lækkað og lækkað verulega. Við getum þá gert ráð fyrir því að við séum að ná nokkrum árangri í að ná niður verðbólguvæntingum. Ég hef líka sagt það ítrekað í þessum ræðustól: Mikilvægasta málið er að við höldum okkur við þær áætlanir sem við gerum. Það hefur þessi ríkisstjórn gert. Hún hefur lagt fram fjármálaáætlun sem ítrekað var gagnrýnd fyrir að vera of metnaðarfull en við höfum staðið við. Hún hefur lagt fram fjárlög í samræmi við þá fjármálaáætlun og mun nú leggja fram fjármálaáætlun sem styður enn við þá vegferð að ná niður verðbólguvæntingum.

Ég ítreka það sem ég sagði í svari mínu til hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar: Skoðaðu sundurliðunina á tölum Hagstofunnar (Forseti hringir.) og hvað það er sem keyrir þessar breytingar áfram.