viðbrögð stjórnvalda við verðbólgu.
Forseti. Ég þakka þér fyrir að hleypa mér í ræðustól. [Hlátur í þingsal.] Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir spurninguna. Nú geta auðvitað krónutöluhækkanir eða skattalækkanir haft áhrif á verðbólgumælingar en hafa öfug áhrif á verðbólguvæntingar. Það er að einhverju leyti grundvallarvandamál að halda að við getum eytt okkur með hallarekstri út úr verðbólgu, það er bara ekki hægt. Og mér er eiginlega alveg sama hvað sænskum kollegum forsætisráðherra dettur í hug að gera, þetta er ekki eitthvað sem mögulegt er að nota í þessu skyni (Gripið fram í.) — og þeim þá líka. Ég hef farið yfir það hér áður að krónutöluhækkanir sem ekki fylgja verðlagi eru lækkanir á krónutölugjöldum. Hvernig útskýrið þið það eiginlega fyrir sjálfum ykkur, ég er svo hissa á að fá þessar spurningar ítrekað, að Seðlabankinn noti vaxtahækkanir til að hafa áhrif á verðlag ef þið haldið að skattalækkanir hafi ekki öfug áhrif? Ég bara botna ekkert í þessu.