þróun efnahagsmála.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir spurninguna. Spurt er um hagstjórnarhlutverk ríkisins. Ég hef svo sem farið yfir það í ræðum hér áður að hagstjórnarhlutverk ríkisins snýst að mestu um það að reyna að haga rekstri sínum þannig að þegar er þensla þá ýti ríkið ekki undir þenslu heldur dragi saman seglin en nýti frekar svigrúmið þegar er samdráttur til að leggja í aukin útgjöld. Þetta hlutverk ríkisins er vandmeðfarið vegna þess að það tekur oft langan tíma fyrir ríkið að skipta um kúrs og reynslan hefur sýnt að það að ætla að beita ríkisfjármálunum til þess að stýra verðlagi til skemmri tíma er mjög erfitt.
Fyrst og fremst eru það langtímaáhrifin sem skipta máli, þ.e. að leggja upp áætlanir t.d. um það að ríkissjóður sé rekinn með afgangi þegar vel árar og þá frekar með halla þegar illa árar. Það er það eina hlutverk sem ríkisfjármálin geta raunverulega sinnt. Það sem ég hef ítrekað verið að gagnrýna í málflutningi stjórnarandstöðunnar, eða átt erfitt með að sætta mig við, eru hugmyndir þeirra um niðurgreiðslu ríkisins á ýmsu verðlagi til þess að hafa áhrif á verðbólgumælinguna sem hefur þveröfug áhrif á verðbólguvæntingarnar. Mitt hlutverk, hingað til og hér eftir, verður að spila inn í verðbólguvæntingarnar; að ná jafnvægi í rekstri hins opinbera á næsta ári eins og þessi ríkisstjórn hefur einsett sér. Ég ætla að leyfa mér að taka undir áhyggjur stjórnarandstæðinga og þeirra sem hafa spurt mig hér í dag af verðlagsþróuninni. (Forseti hringir.) Hún er alls ekki góð. Viðbrögðin þurfa hins vegar að vera í samræmi við það sem ríkið getur gert og er skynsamlegt.