157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

þróun efnahagsmála.

[11:03]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Það hefur áður verið nefnt í þessum sal að sennilega sé það mikil framför að ég sé frekar hér en í háskólanum vegna þess að mér virðist takast að láta fólk misskilja mig ítrekað. Alla vega gengur mér illa að koma mínum sjónarmiðum á framfæri. Ég taldi einmitt að ég hefði nákvæmlega svarað spurningum hv. þingmanns og biðst afsökunar á því ef hann hefur ekki skilið það þannig. Ég vil ítreka það sem ég sagði í fyrra svari mínu: Hlutverk ríkisins, hlutverk ríkisfjármálanna er að vinna á langtímavæntingunum, ekki skammtímamælingunum. Ég biðst afsökunar á því en mér finnst allar þær hugmyndir sem snúa að því að niðurgreiða einhvers konar neyslu til að falsa verðbólgumælingar lýsa grundvallarskilningsleysi á eðli fyrirbærisins verðbólgu, sem er ekki gott að sé útbreitt í þinginu vegna þess að hér þarf að taka ákvarðanir sem varða langtímahagsmuni þjóðarinnar.