hækkun á kolefnisgjaldi.
Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra var á harðahlaupum undan afleiðingum skattahækkana, þeirra sem voru kynntar hér og lagðar fyrir um áramótin. Þá er ég að vísa til svars hans við fyrirspurn hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Hann vísaði til einhverra óskilgreindra aðila sem hefðu hækkað sín gjöld. Ég bendi á að í tilkynningu Hagstofunnar, sem birt er í dag, kemur fram að um áramótin hafi verið gerðar ýmsar breytingar á gjöldum tengdum ökutækjum sem höfðu áhrif á vísitölu neysluverðs og sérstaklega er vísað til kolefnisgjalds. Það er um það sem ég ætlaði að spyrja hæstv. ráðherra, vegna þess að kolefnisgjald var hækkað um 32% um áramótin og hafði þá verið hækkað um 100% á einu ári, 100%. Um ástæður þessarar hækkunar mátti lesa í nýjustu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar þar sem segir að samhliða sé kolefnisgjald hækkað til að fanga neikvæð, ytri áhrif af brennslu kolefnis. Þetta sjónarmið um ástæður hækkunar kolefnisgjaldsins í tengslum við breytingarnar, kerfisbreytingar á kílómetragjaldinu, var ítrekað í nýlegri yfirlýsingu fjármálaráðuneytisins frá því 12. janúar 2026, á þessu ári, þar sem segir að samhliða þessum breytingum hafi kolefnisgjald verið uppfært þannig að það endurspegli betur raunverulega losun CO2 vegna notkunar jarðefnaeldsneytis.
Það er þess vegna sem ég vil spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort þessum hækkunum, eða hvað maður á að kalla það, uppfærslum og breytingum, eins og það kallast á Viðreisnarmáli, á kolefnisgjaldi sé núna lokið þegar það er mat stjórnvalda að með greiðslu þess eins og það er núna séu notendur bensíns og dísilolíu búnir að gjalda fyrir meintar syndir sínar í loftslagsmálum. Eða eins og segir nákvæmlega í rökstuðningi stjórnvalda fyrir hinum miklu hækkunum, að kolefnisgjaldið eins og það er núna orðið endurspegli losun CO2 og fangi neikvæð áhrif brennslu kolefnis. Mega bíleigendur treysta því að þessum hækkunum sé þar með lokið?