157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

hækkun á kolefnisgjaldi.

[11:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir spurninguna. Nú er það auðvitað þannig að mat á kostnaði af neikvæðum ytri áhrifum vegna losunar koltvísýrings er fljótandi. Það eru alla vega engin slík áform uppi. Ég held líka að við þurfum að vera meðvituð um að það eru fleiri þættir sem tala inn í áherslu á hreinorku en bara kolefnislosunin. Það hefur með áhættuna að gera sem fylgir því að vera algerlega háð aðfluttum aðföngum, sérstaklega í landi sem býr yfir eins umfangsmiklum hreinum orkugjöfum og Ísland. Innleiðing á kolefnisgjaldinu á sínum tíma var einmitt og hefur alltaf verið hugsuð sem hvati til orkuskipta. Orkuskipti eru nefnilega fyrirbæri sem Íslendingar hafa þegar, a.m.k. einu sinni, gengið í gegnum. Það er aldrei auðvelt en enginn, held ég, mælir gegn þeirri breytingu sem gerð var á síðustu öld þegar við hættum að nota jarðefnaeldsneyti til að kynda og fórum yfir í jarðvarma. Við stöndum frammi fyrir annarri slíkri áskorun núna. Ábatinn af því er bæði umhverfislegur en líka efnahagslegur fyrir Ísland og sjálfbærni Íslands.