virkjunarkostir rammaáætlunar.
Virðulegur forseti. Ég sé að hæstv. fjármálaráðherra er dauðuppgefinn eftir atlögu morgunsins [Hlátur í þingsal.] þannig að ég ákvað að brjóta þetta aðeins upp (Gripið fram í.) og beina spurningu minni til hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Í verkefnisstjórn þriðja áfanga rammaáætlunar höfum við verið að fjalla um fimm virkjunarkosti; Skrokköldu, Holtavirkjun, Kjalölduveitu, Héraðsvötn og Urriðafoss. Verkefnisstjórnin leggur til að Urriðafoss, sem ég ætlaði að ræða hér við hæstv. ráðherra, sem er 1090 GWst virkjun og gríðarlega hagkvæmur virkjunarkostur, fari í nýtingu. Meiri hluti nefndarinnar ákvað síðan síðastliðið vor að Urriðafoss færi í bið. Ráðherra kemur síðan nú í haust og færir Urriðafoss aftur í nýtingu en nú er meiri hluti nefndarinnar búinn að færa Urriðafoss aftur í bið. Þetta er svolítið mikill hringlandaháttur. Urriðafoss hefur flakkað á milli bið- og nýtingarflokks hjá meiri hlutanum og ráðherranum nú undanfarna mánuði. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Er hann sammála meiri hluta nefndarinnar um að fara gegn tillögu hans sjálfs og færa Urriðafoss aftur í bið eða styður hæstv. ráðherra tillögu Sjálfstæðismanna um að Urriðafoss verði í nýtingarflokki, eins og hæstv. ráðherra hefur sjálfur lagt til?