157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

virkjunarkostir rammaáætlunar.

[11:16]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra getur treyst á það að Sjálfstæðisflokkurinn mun styðja hæstv. ráðherra í því að setja alla þessa virkjunarkosti í nýtingu, enda er það tillaga Sjálfstæðisflokksins að allir þessir kostir fari í nýtingu. Ég verð að segja áður en ég kem að seinni spurningunni að það eru bara 760 GWst sem er verið að hleypa í nýtingu af 3.517 sem eru núna til umræðu. En ég fagna því að þó eru t.d. Héraðsvötn komin í bið en ekki vernd.

Við vorum hér í gær eða fyrradag líka að ræða verkefnastjórn 5. áfanga rammaáætlunar um Hamarsvirkjun sem gríðarlega mikill þrýstingur er á og vilji fyrir því austur á fjörðum, frá samfélaginu öllu, sveitarstjórnum, landeigendum og öðrum, að fari í nýtingu. Það er verið að leggja til að sá flokkur fari í bið. Settur ráðherra í málaflokknum, Logi Einarsson, og oddviti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi kom upp og lýsti velvilja og jákvæðni fyrir því að þessi virkjunarkostur færi í nýtingu. Hv. þm. Ingvar Þóroddsson, oddviti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, kom upp og lýsti yfir miklum velvilja og jákvæðni fyrir því að Hamarsvirkjun færi í nýtingu. (Forseti hringir.) Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Er hæstv. ráðherra einnig jákvæður fyrir því ef nefndin myndi taka þá ákvörðun að Hamarsvirkjun færi ekki biðflokk heldur í nýtingu?

(Forseti (ÞSv): Forseti ætlar enn og aftur að minna hv. þingmenn á að gæta og fara að reglum um ræðutíma.)