virkjunarkostir rammaáætlunar.
Virðulegur forseti. Það er alltaf gaman að fylgjast með því hvernig málin breytast hjá Sjálfstæðisflokknum í orkumálum. Á síðasta kjörtímabili lagði þáverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins fram tillögu um að þeir kostir sem núverandi ríkisstjórn vill fara varlega í að friðlýsa yrðu beinlínis settir í verndarflokk rammaáætlunar. En nú er það orðin skoðun Sjálfstæðisflokksins að þessir kostir eigi að fara í nýtingu. Gott og vel. Við erum varfærin og viljum að kostir sem á eftir að rannsaka að verulegu leyti, eins og Urriðafoss, sem er alveg ljóst að verður ekki farið í strax, verði í biðflokki aðeins í bili. Varðandi Hamarsvirkjun þá get ég bara tekið undir það, með settum ráðherra í málinu, að ef umfjöllun nefndarinnar leiðir af sér þá niðurstöðu að skynsamlegt sé að ganga alla leið og setja þennan virkjunarkost í nýtingarflokk, sem væri þá einmitt í samræmi við ákall nærsamfélagsins á svæðinu, myndi ég styðja það mjög eindregið.