157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

forgangsröðun þingmannamála.

[11:20]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það kom fram í máli forseta hér áðan að hún væri með skilaboð til þingflokksformanna um að þeir skoði forgangsröðun þingmannamála en svo er þetta grásleppumál sem er á dagskrá á eftir tekið alveg út fyrir sviga. Mál sem naut ekki einu sinni stuðnings allra þingmanna stjórnarmeirihlutans í nefndinni var tekið út í óvönduðum vinnubrögðum og er mjög umdeilt. Ég ítreka því beiðni mína. Þetta mál grefur undan trúverðugleika fiskveiðistjórnarkerfisins, leiðir til réttaróvissu og minnkar trú á forsvaranlega umgengni um nytjastofna sjávar. Þetta er íhlutun sem virðist fyrst og fremst byggjast á pólitískum geðþótta en ekki faglegum rökum. Það er óumdeilt að stjórnvöld fara með fullveldisrétt yfir fiskveiðiauðlindinni en að afnema og raska atvinnuréttindum sem einstaklingar eða lögaðilar áunnu sér með lögmætum hætti á grundvelli gildandi löggjafar getur gengið í bága við stjórnarskrá lýðveldisins, 72. gr. Það er komið inn á það í athugasemdum við þetta frumvarp.

Ég ítreka beiðni mína, virðulegur forseti, til að gæta hér friðar og þess að við getum unnið áfram af heilindum í þinginu, um að þetta mál fari af dagskrá. Þetta mun annars kalla á óþarfa umræðu í öðrum málum til að halda þessu máli frá því að fara inn í 2. umræðu. Við óskum eftir að það fái fullnaðarmeðferð í nefndinni, að þingmannamál sem er ekki einu sinni stutt af meirihlutaflokkunum öllum, meirihlutaþingmönnunum öllum, sé tekið af dagskrá og að við vinnum þetta betur í nefndinni.

(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að gæta þess í umræðum um fundarstjórn forseta að halda sig við formið en ekki efni mála á dagskrá.)