157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

laun forseta Íslands og Stjórnarráð Íslands.

314. mál
[11:23]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um laun forseta Íslands, nr. 10/1990, og lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.

Efni frumvarpsins er í meginatriðum fjórþætt. Í fyrsta lagi er kveðið á um skipun forsetaritara, hlutverk hans og launakjör. Í öðru lagi er forseta veitt heimild til ráðningar aðstoðarmanns með tilteknum frávikum frá almennum reglum um opinbera starfsmenn, þeim sömu og gilda um aðstoðarmenn ráðherra. Í þriðja lagi eru gerðar breytingar á fyrirkomulagi við greiðslur til handhafa forsetavalds, í þá átt að greiðslurnar verði fremur táknrænar en tengdar við vinnuframlag. Loks er í fjórða lagi áréttuð heimild forsætisráðherra til að setja umgjörð um samhæfingu á tilteknum sviðum, svo sem varðandi öryggismál æðstu stjórnar, staðgöngu ráðherra og rafrænar undirritanir á vettvangi Stjórnarráðs og ríkisráðs, í þágu aukins skýrleika.

Forseti. Hvað varðar skipun forsetaritara, hlutverk hans og launakjör þá er forsetaritari embættismaður en um starf hans gilda ekki sérstök ákvæði í lögum. Starf forsetaritara er um margt sérstakt og þess eðlis að það á sér ekki beina hliðstæðu innan stjórnkerfisins. Full ástæða er til að staða og verksvið forsetaritara sé afmarkað í lögum, enda gegnir forsetaritari mikilvægu og ábyrgðarmiklu embætti. Fyrirhuguð heimild til handa forseta, að ráða sér aðstoðarmann með sambærilegum hætti og ráðherrar, kallar einnig á aukinn skýrleika um stöðu og verksvið forsetaritara. Frumvarp þetta felur því í sér að kveðið verði á um hlutverk og skipunartíma forsetaritara til samræmis við núverandi stöðu og þróun embættisins á undanförnum áratugum. Forsetaritari stýrir skrifstofu embættisins, ræður annað starfslið, er ábyrgur fyrir rekstri og skipuleggur starfsemina. Hér er lagt til að forseti skipi forsetaritara til fimm ára í senn, setji erindisbréf, veiti lausn o.s.frv., allt að fenginni tillögu forsætisráðherra sem undirritar viðkomandi skjöl ásamt forseta. Verkaskipting forseta og ráðherra í þeim efnum hefur ekki verið einhlít þegar litið er til framkvæmdar undanfarinna áratuga. Tillaga frumvarpsins er í samræmi við þó nokkur fyrirliggjandi dæmi þess efnis að forseti og forsætisráðherra undirriti skipunar- eða lausnarbréf í sameiningu, á grundvelli tillögu frá ráðherra. Hins vegar liggur einungis fyrir eitt skýrt dæmi um að forseti undirriti skipunarbréf forsetaritara einn, án aðkomu ráðherra. Frumvarpið felur því í sér aukinn skýrleika um þetta efni. Tekið er tillit til sérstakra tengsla embættis forsetaritara við forseta en jafnframt gætt að almennum ákvæðum stjórnarskrár um verkaskiptingu ráðherra og forseta, svo sem um að ráðherrar beri ábyrgð á stjórnarframkvæmdum en forseti ekki og að forseti láti ráðherra framkvæma vald sitt.

Þá er lagt til að laun forsetaritara verði ákvörðuð í lögum með fastri krónutölufjárhæð, þar af föst krónutölufjárhæð fyrir álag og yfirvinnu sem starfinu fylgir. Launin verði síðan endurákvörðuð 1. júlí ár hvert miðað við hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins. Þetta er sama fyrirkomulag og gildir um laun ráðuneytisstjóra, dómara og fleiri embættismanna. Tölur þær sem tilgreindar eru í ákvæðinu miðast við laun forsetaritara 1. nóvember 2025, þó þannig að samsetningu þeirra er breytt til samræmis við t.d. laun ráðuneytisstjóra.

Virðulegi forseti. Annað efni þessa frumvarps snýr að því að forseta verði veitt heimild til ráðningar aðstoðarmanns með tilteknum frávikum frá almennum reglum um opinbera starfsmenn. Af hlutverki forseta leiðir að sá einstaklingur sem embættinu gegnir hefur umtalsvert svigrúm til að stýra áherslum og verkefnum í embættistíð sinni, en auðvitað þarf að gera það innan marka stjórnarskrár og laga. Æskilegt má því telja að forseti hafi heimild til að velja sér til ráðgjafar sérstakan aðstoðarmann sem hafi þá hæfileika og reynslu sem henti og njóti að auki fyllsta persónulegs trausts forseta.

Í frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að ráða til starfa við forsetaembættið sérstakan aðstoðarmann sem ekki yrði ráðinn þangað sem almennur sérfræðingur. Starfið yrði ekki auglýsingaskylt og því lyki ekki síðar en þegar viðkomandi forseti léti af embætti. Þau frávik frá almennum reglum um opinbera starfsmenn sem í þessu felast grundvallast á sambærilegum sjónarmiðum og við eiga um aðstoðarmenn ráðherra og ríkisstjórnar. Verkefni beggja snúa að stefnu- eða áherslumálum fremur en faglegum embættisskyldum og óskorað traust er auðvitað forsenda starfssambandsins.

Ég vil líka geta þess í þessu samhengi að hér er ekki verið að leggja til auknar fjárheimildir vegna þessa starfs. Það er ekki verið að leggja það til að það eigi að fjölga starfsmönnum heldur fyrst og fremst að samsetning starfsmanna forsetaembættisins verði með þeim hætti að forseti geti þar ráðið inn einn trúnaðarmann í raun til aðstoðar sem þarf ekki að fylgja öðrum ráðningarskyldum.

Í þriðja lagi er í frumvarpinu verið að leggja til breytingar á fyrirkomulagi við greiðslur til handhafa forsetavalds. Þetta snýr að því að þessum greiðslum til handhafa forsetavalds og fyrirkomulagi þeirra verði breytt með hliðsjón af þeim góðu almennu starfskjörum sem og embættisskyldum umræddra embættismanna. Nánar tiltekið verði þóknun til handhafa forsetavalds föst upphæð eða 300.000 kr. samanlagt á ári, óháð fjölda daga sem forseti er á erlendri grundu eða getur ekki gegnt störfum sínum af öðrum ástæðum. Með þessu móti myndu árlegar heildargreiðslur til handhafa lækka úr 10 millj. kr. á ári í að meðaltali í 300.000 kr. Greiðslur til hvers handhafa um sig myndu því lækka úr rúmlega 3 millj. kr. á ári í 100.000 kr. á ári sem svarar til mánaðarlegrar lækkunar úr tæplega 300.000 kr. á mann í rúmlega 8.000 kr. Ekki er gert ráð fyrir að umrædd fjárhæð, 300.000 kr., taki breytingum í hlutfalli við verðlagsbreytingar.

Forseti. Sú lækkun sem hér er lögð til er veruleg og leiðir til þess að handhafagreiðslur verða fremur táknrænar en tengdar við vinnuframlag. Ástæðan fyrir því að ekki er lagt til að afnema greiðslurnar með öllu er sú að í 2. mgr. 9. gr. stjórnarskrárinnar segir að ákveða skuli með lögum greiðslur af ríkisfé til forseta og þeirra sem fara með forsetavald. Ég vil bæta því, við, forseti, að þessi breyting er í takt við tillögur sem lagðar voru fram við upphaf kjörtímabils um sparnað í ríkisrekstri. Vissulega er það svo að 10 millj. kr. hljóma ekki eins og há upphæð í stóru myndinni en það er engu að síður svo að þetta eru 10 millj. kr. sem runnu árlega, og oft hærri upphæð, til þriggja einstaklinga umfram almenn launakjör. Það skiptir máli í þessu samhengi að við sem erum í forystu sýnum gott fordæmi, við veitum ákveðið gegnsæi þegar kemur að kjörum okkar og sýnum að við getum tekið það til okkar að allir þurfa að líta inn á við þegar kemur að umræddri hagræðingu.

Í fjórða og síðasta lagi hvað varðar þetta frumvarp þá er áréttuð heimild forsætisráðherra til að setja umgjörð um samhæfingu á tilteknum sviðum, svo sem varðandi öryggismál æðstu stjórnar, staðgöngu ráðherra og rafræna undirritun á vettvangi Stjórnarráðsins og ríkisráðs, í þágu aukins skýrleika. Í frumvarpinu er lagt til að forystu- og samhæfingarhlutverk forsætisráðherra, þvert á málefnasvið ráðuneyta, verði áréttað í tilteknum atriðum og sérstaklega horft til öryggismála æðstu stjórnar, staðgöngu ráðherra og rafrænna undirritana. Markmiðið er einkum að skapa skýrari forsendur fyrir samhæfingu á grundvelli gildandi laga og að höfðu samráði við hlutaðeigandi stjórnvöld á viðkomandi málefnasviðum.

Tillögur frumvarpsins fela hvorki í sér auknar heimildir forsætisráðherra né tæmandi talningu þeirra. Ör tækniþróun, svo sem á sviði rafrænna undirritana, hefur m.a. aukið möguleika á rafrænni stjórnsýslu af ýmsu tagi með tilheyrandi vinnuhagræði. Aukin nýting á rafrænni undirritun, innan þeirra marka sem eru talin hæfa verkefnum ríkisráðs, er eitt af þeim atriðum sem til skoðunar hafa verið í því samhengi og málið hefur fengið jákvæðar viðtökur hjá forseta Íslands. Fyrir liggur að rafrænar undirritanir erlendis frá gætu leitt til óvissu um ábyrgð, verkaskiptingu og öryggi. Í frumvarpinu er því gengið út frá því að fyrst um sinn a.m.k. verði heimild til rafrænna undirritana bundin við að undirritandi sé staddur innan lands og þannig komið í veg fyrir röskun á svokölluðu handhafakerfi og fyrirkomulagi tímabundinna staðgöngu í fjarveru ráðherra og ráðuneytisstjóra. Forsætisráðherra mun setja nánari reglur um þetta efni og ekki er loku fyrir það skotið að heimild til rafrænna undirritana verði víkkuð út þegar það þykir tímabært.

Ég vil jafnframt bæta því við í þessu samhengi að eitt af því sem var sérstaklega skoðað þegar var farið yfir hagræðingartillögur í upphafi síðasta árs var með hvaða hætti við gætum sparað starfskostnað með nýtingu tækni. Nú er það svo að það eru starfsmenn í forsætisráðuneytinu og eftir atvikum öðrum ráðuneytum, en sérstaklega í forsætisráðuneytinu, sem eyða umtalsverðum tíma í að hafa upp á ráðherrum þegar kemur að undirritun ákveðinna skjala. Allar tillögur sem þarf að leggja inn í þingið, hvort sem það eru lagafrumvörp eða þingsályktunartillögur, þarf að undirrita í persónu af ráðherra. Það felst oft mikið óhagræði í því að standa að þessu. Þess vegna hefur verið litið til þess að við gætum, innan núverandi lagafyrirkomulags, farið í auknar rafrænar undirskriftir til þess að draga úr þessu umstangi. En af því að við viljum kynna til leiks þetta verklag þá finnst okkur skipta máli að sníða þessu fyrirkomulagi ákveðinn stakk vegna þess að við viljum heldur ekki að rafrænar undirskriftir gangi of langt. Við þurfum líka að halda í ákveðið form, við þurfum að tryggja það að við göngum ekki of langt. Þess vegna stígum við þetta skref í þessu frumvarpi til að ná betur utan um þessar heimildir. Í lok dags er þetta annað atriðið í frumvarpinu sem snýr sérstaklega að hagræðingu í ríkisrekstri og bættu skipulagi.

Frú forseti. Í lokin er vert að geta þess að eftir að frumvarpið var lagt fram komu fram athugasemdir við ákvæði þess um forsetaritara. Af því tilefni aflaði ráðuneytið álitsgerðar fræðimanns og fékk Þjóðskjalasafnið til að taka saman gögn um það hvernig staðið hefur verið að skipun og lausn forsetaritara á lýðveldistímanum. Þingnefndinni sem fjallar um málið verður gerð grein fyrir þessum gögnum.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og svo til 2. umræðu í þinginu.