laun forseta Íslands og Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Ég vil koma hingað upp til að spyrja einmitt um það sem hæstv. forsætisráðherra nefndi í lok framsögu sinnar, hugsunina á bak við það hver aðkoma forsætisráðuneytisins raunverulega verði að ráðningu forsetaritara. Ég spyr vegna þess að það er í mínum huga mjög mikilvægt að gæta að sjálfstæði forsetans og ákvörðunarrétti hans þegar kemur að skipan á skrifstofu hans. Það er ágætt að komið sé álit, sem ég hef vitaskuld ekki séð og sit ekki í þeirri nefnd sem málið fer til. En það er mikilvægt að nefndin skoði mjög vel útfærsluna í frumvarpinu, hvort hún sé fullnægjandi að þessu leyti. Ég hvet nefndina til að gera það vegna þess að það er mjög margt sem er stundum loðið, a.m.k. í framkvæmd, ýmislegt sem byggir á hefðum og venjum og fyrir hinn almenna borgara er ekki alltaf nákvæmlega ljóst hvert er hlutverk forsetans og skyldur og síðan samspil löggjafarvalds og framkvæmdarvalds og dómsvalds, fyrst og síðast löggjafarvalds og framkvæmdarvalds. Það er mikilvægt að við pössum upp á það að forsetinn sé ávallt nægilega sjálfstæður í sínum störfum og hafi ákvörðunarrétt þegar kemur að skipan sem þessari vegna þess að þessi valddreifing og þetta aðhald er mjög mikilvægt, sérstaklega gagnvart aðstæðum sem við sjáum ekki endilega fyrir nú, sem er einmitt ástæðan fyrir þessu kerfi og þessu samspili yfirhöfuð í stjórnarskrá lýðveldisins.