laun forseta Íslands og Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Ég kem hér upp, ekki síst í ljósi þess að hæstv. forsætisráðherra vísaði í þetta mál sem sparnaðarfrumvarp og nefndi að þótt ekki myndu sparast nema kannski 10 millj. kr. með því að hverfa frá hefðum varðandi handhafa forsetavalds þá þurfi allir að líta inn á við, eins og hæstv. ráðherra orðaði það, og sýna gott fordæmi. Að vísu fylgdi sögunni að með þessu frumvarpi væri gert ráð fyrir nýju starfi, nýju hlutverki sem gerir nú líklega meira en að vinna upp þann sparnað sem hér er tíndur til með þessum breytingum hefða og nútímavæðingu, sem kann að vera tímabær, ég skal ekki segja um það. En það sem ég velti fyrir mér er hvort þessi nálgun hæstv. forsætisráðherra á þetta sem sparnaðarleið sé hugsanlega lýsandi fyrir það hvernig þessi ágæta ríkisstjórn nálgast ríkisreksturinn. Hér er þetta mál gert að sparnaðarmáli, þó að það sé það kannski ekki í heild en að með hluta þess sparist 10 millj. kr. Um leið stækka kannski umsvif hins opinbera örlítið. En mér fannst þetta áhugavert í ljósi þess hvernig þessi ríkisstjórn hefur nálgast rekstur ríkisins með yfirlýsingum sem eru öndverðar á við það sem birtist í raunveruleikanum. Hér áðan ræddum við við hæstv. fjármálaráðherra um það ófremdarástand sem nú ríkir með vaxandi verðbólgu. Þá veltir maður fyrir sér: Telur ríkisstjórnin og hæstv. forsætisráðherra að það sé hægt að dreifa athyglinni og (Forseti hringir.) tala sig frá geigvænlegum hallarekstri ríkisins með því að koma hér og státa sig af 10 millj. kr. sparnaði með rafrænni skráningu handhafa forsetavalds?