157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

laun forseta Íslands og Stjórnarráð Íslands.

314. mál
[11:42]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það liggur fyrir að hv. þingmaður hefur ekki hlustað á ræðu mína hér áðan. Mér er bæði ljúft og skylt að koma hér upp og tilkynna að það stendur ekki til að auka fjárveitingar til forsetaembættisins vegna þessara fyrirhuguðu breytinga. Þetta snýst fyrst og fremst um að starf eins af þeim starfsmönnum sem eru á skrifstofu forseta sé þess eðlis að viðkomandi geti verið trúnaðarmaður forseta sem er ráðinn án svona hefðbundinnar auglýsingaskyldu. Mér þykir þetta eðlileg tilhögun. Forseti kemur inn án síns starfsliðs, þetta er miklu ólíkari staða en t.d. þegar kemur að ráðherrum ríkisstjórnar sem koma með trúnaðarfólk með sér inn. Þetta getur verið fólk sem hefur kannski unnið með forseta árum saman eða þekkir persónulega eða jafnvel hefur áhuga á sama sviði og viðkomandi og vill vinna í stefnumótunarvinnu með honum og í því samhengi finnst mér fullkomlega eðlilegt að einn af þessum starfsmönnum komi til sögunnar sem eins konar aðstoðarmaður, persónulegur aðstoðarmaður forseta. Þannig að mér er bæði ljúft og skylt að ítreka að það er ekki rétt sem hér er sagt að þetta sé útgjaldamál.

Hvað varðar hins vegar umræddar 10 millj. kr. þá átta ég mig fullkomlega á því að í stóra samhengi hlutanna er ekki um háar upphæðir að ræða. Hér er hins vegar um að ræða að mínu mati háar upphæðir á hvern aðila sem hlýtur þessar greiðslur. Ég minnist þess aldrei með fyrri ríkisstjórnir og þar með talið fyrri forsætisráðherra, að þeir hafi minnst á að þeir fái um 3 millj. kr. til viðbótar á hverju einasta ári við sín laun fyrir það eitt að undirrita af og til nokkur skjöl. Mér finnst þetta til marks um góða og gagnsæja stjórnsýslu og já, að við lítum okkur nær. Hver króna skiptir máli. Viðhorf skiptir máli og nákvæmlega svona erum við að fara í sparnaðartillögurnar okkar. Við erum ekki að setja okkur eða kerfið í fyrsta sæti heldur erum við að snúa við hverjum einasta steini. Þetta skiptir líka máli og skilaboðin sem því fylgja. En þetta er bara eitt af mjög mörgum.