laun forseta Íslands og Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Þessi ríkisstjórn lagði strax í upphafi kjörtímabils fram háleit markmið um sparnað í ríkisrekstrinum, 107 milljarða kr. á tímabili fjármálaáætlunar, áætlun sem við höfum staðið undir hingað til og munum standa áfram undir. Það er verið að ráðast í sameiningar víða. Upphaf þessa kjörtímabils fól í sér að við lögðum til að mynda niður heilt ráðuneyti til þess m.a. að spara hundruð milljóna króna. Það er rétt sem hér kemur fram að ákveðin svið stjórnsýslunnar stækkuðu á síðasta kjörtímabili. Það liggur alveg fyrir. Sú hefur ekki orðið raunin á þessu kjörtímabili. Ef eitthvað er þá er búið að draga saman seglin og án þess að vera að fara í smáatriðum út í það þá þarf ekki annað en að fylgjast með fréttatilkynningum sem hafa borist úr Stjórnarráðinu, það liggur alveg fyrir að það er verið að fækka starfsfólki á mörgum starfsstöðvum frekar en fjölga þannig að það stendur víða yfir endurskipulagning. Þetta tekur vissulega tíma, eftir árafjölda þar sem fólk hefur setið í þessum ráðuneytum og fyrst og fremst verið að fjölga starfsfólki.
Það skiptir máli að sýna gott fordæmi. Það er mikill vilji hjá ráðherrum þessarar ríkisstjórnar og hjá stjórnarmeirihlutanum til að finna leiðir til að draga úr óþarfakostnaði. Ég ætla bara að ítreka það sem ég sagði áðan, ég átta mig á að þetta eru ekki háar upphæðir en þetta er oft það sem dregur mest úr trú almennings á pólitíkinni, að fólk sé að taka fjárhæðir út úr kerfinu sem virka lágar í stóra samhenginu en eru persónulega mjög háar, til þess eins að gera sína stöðu mögulega fjárhagslega sterkari og ekki vera að segja almennilega frá því. Svona skiptir máli. Við getum síðan alveg rætt um hver eru eðlileg kjör ráðherra. En mér þykir alveg ljóst að umrædd ráðstöfun er ekki gagnsæ og fæstir höfðu haft orð á henni. Ég hafði aldrei heyrt einn einasta forsætisráðherra, a.m.k. ekki á meðan ég hef verið á þingi, ræða um þessar greiðslur.