veiting ríkisborgararéttar.
Virðulegur forseti. Hér afgreiðum við enn og aftur ríkisborgararétt fyrir einhverja einstaklinga sem þingheimur almennt hefur ekki fengið að skoða nein gögn á bak við. Valið liggur hjá þriggja manna þingnefnd sem við eigum að treysta til að meta það hverjir eru þess bornir að fá ríkisborgararétt í þessu landi og hverjir ekki. Það liggur fyrir að umsóknir, ef ég man rétt, voru á þriðja hundrað í þessu tilfelli og það er verið að veita hér einhverjum 28 manns ríkisborgararétt.
Ég er lengi búinn að vera þeirrar skoðunar, virðulegur forseti, að þetta fyrirkomulag sé algjörlega ómögulegt. Í fyrsta lagi var þetta ákvæði undantekningarákvæði, þ.e. það voru undantekningardæmi sem leituðu til þingsins og ég tel að það sé rétt, þingið getur auðvitað alltaf tekið þær ákvarðanir sem það vill í þessum málum. Það þarf svo sem enga sérstaka lögfestingu út af því, af því að þetta er fest með lögum. Þetta þróaðist síðan á einhverju tímabili yfir í það að verða nánast meginregla. Hún hafði þau áhrif í för með sér að hjá þeim sem voru bara í eðlilegum farvegi með að sækja um ríkisborgararétt samkvæmt gildandi lögum varðandi búsetulengd, kunnáttu í íslensku, hreint sakavottorð o.s.frv., dróst afgreiðslutími úr hófi fram vegna þess að lengi vel voru þessar umsóknir látnar hafa algjöran forgang fram yfir aðrar umsóknir.
Þegar ég var á sínum tíma dómsmálaráðherra breytti ég vinnulagi Útlendingastofnunar í þá átt að þessi forgangsröðun hætti. Það var eftir m.a. athugasemdir frá umboðsmanni Alþingis og fleirum um að það væri ekki viðunandi að málsmeðferðartími þeirra sem voru að fylgja almennum reglum samkvæmt lögum um að fá ríkisborgararétt lengdist stöðugt upp í marga mánuði, jafnvel á annað ár, vegna þess að fólk var farið að haka við það að umsókn þess ætti að fara til Alþingis og fá þá einhvers konar, eins og ég orðaði það, „VIP“-meðferð.
Á sínum tíma lögðu þá þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar fram vantrauststillögu gagnvart mér, töldu mig vera að brjóta lög með því að Útlendingastofnun ætti ekki að senda upplýsingar og vinna þau mál eitthvað hraðar sem þingið óskaði eftir því að fá upplýsingar um. Hún var felld á sínum tíma. Ég stóðst vantraustið. Stuttu síðar skilaði Lagastofnun Háskóla Íslands niðurstöðu í þessu máli. Það var að beiðni ráðuneytisins, að beiðni minni, að Lagastofnun vann álit í þessum efnum og komst að þeirri niðurstöðu að við hefðum verið algerlega á réttri leið í ráðuneytinu.
Nú erum við komin hér enn og aftur þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um hversu óvandað þetta kerfi er, eða hvernig eigum við þingmenn að geta svarað því hvort þessir 28 séu þess bærir að fá ríkisborgararétt sem ekki verður aftur tekinn, öll þau réttindi og allar þær skyldur sem því fylgja en ekki hinir kannski 200? Er einhver þingmaður sem getur rétt upp hönd og sagst vera alveg klár á því að þetta sé alveg rétt niðurstaða sem þrír þingmenn hafa kynnt sér, farið yfir og koma hér með tillögu? Við vitum það öll sem hér sitjum í þessum sal að gjarnan í aðdraganda þessara mála, þegar um þetta er rætt og þetta er til vinnslu hjá undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar eða hóp innan hennar, fáum við símtöl og erindi víða frá þar sem fólk er að hvetja okkur til þess að leggja því lið við það að einn eða annar fái ríkisborgararétt. Þetta kerfi er eins ógegnsætt og hugsast getur. Þetta stenst í raun enga nútímastjórnsýslu og það sem við vinnum eftir.
Enn og aftur hvet ég þingið til að taka þessar reglur til endurskoðunar, að við vinnum þetta eftir sómasamlegum hætti. Það er örugglega réttlætanlegt í mörgum tilfellum að veita fólki ríkisborgararétt vegna sérstakra aðstæðna. Ég geri ekki lítið úr því. Þingið á að koma að þeim málum. Kannski ætti vald þingsins og úrskurðir þess að vera enn víðtækari. Þessi mál væru þá bara unnin á vegum þingsins og þessu létt af höndum annarra í stjórnsýslunni. En þessu þarf að breyta. Ég mun því, virðulegur forseti, sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.