157. löggjafarþing — 62. fundur,  29. jan. 2026.

veiting ríkisborgararéttar.

398. mál
[12:19]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Ég kveð mér hér hljóðs í fyrsta sinn til þess að óska þeim sem hljóta hér ríkisborgararétt til hamingju, fari svo að þingið samþykki þessi lög. Ég hef orðið þess áskynja að mjög margir þingmenn vilji ræða þetta form og þetta fyrirkomulag sem á rætur að rekja til íslensku stjórnarskrárinnar, núna í hvert skipti sem þessu ákvæði stjórnarskrárinnar er beitt hér á þinginu. Ég velti því fyrir mér hversu vel fari á því að blanda því svona saman. Hér var líka nefnt að hér hafi með einhverjum hætti einhver undantekning orðið að meginreglu. Hið þveröfuga er satt. Þessi leið, að Alþingi veiti ríkisborgararétt, var meginregla mjög lengi, það var helsta leið fólks sem ekki var fætt á Íslandi til að öðlast ríkisborgararétt. Það er raunar ekki fyrr en undir lok síðustu aldar, á tíunda áratug síðustu aldar, sem dómsmálaráðherra eða ráðherra er veitt heimild til þess að veita ríkisborgararétt með stjórnvaldsákvörðun, og það er í dag orðin meginleiðin. Það eru mörg hundruð manns sem hljóta ríkisborgararétt á hverju ári, hafandi búið hér í tilskilinn tíma og uppfylla öll skilyrði. Síðan, eins og fram kemur hér, hafa um 300 manns núna sótt um að fá ríkisborgararétt með þessum hætti og undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar leggur til við allsherjar- og menntamálanefnd að u.þ.b. 20–30 manns af þeim hljóti ríkisborgararétt þannig að hér er sannarlega um undanþágu að ræða. Þá má bara spyrja sig: Viljum við að til sé slík undanþáguleið varðandi íslenskan ríkisborgararétt? Svo hefur nú verið að í nánast öllum löndum sem ég hef athugað og hef skoðað er alltaf til einhver undanþáguleið. Það er annaðhvort forsetinn sem veitir ríkisborgararétt eða eitthvert annað stjórnvald sem veitir slíkan rétt við sérstakar aðstæður. Ég er ekki sammála því að við ættum ekki að hafa slíka undanþáguleið. Og ef slík undanþáguleið á að vera til staðar þá er ég ekki samþykkur því að einhver önnur stofnun heldur en þetta þing taki um það ákvörðun.

Mín skoðun er sú að þetta fyrirkomulag sem undanþáguleið sé ágætlega farsælt og ég myndi ekki styðja að við myndum gera stórfelldar breytingar á því, enda þyrfti að mínu mati stjórnarskrárbreytingu til þess.