útlendingar.
Herra forseti. Við ræðum hér eitt af þessum litlu útlendingamálum sem hafa dúkkað upp annað slagið undanfarin ár þegar stjórnmálamenn hafa viljað gefa til kynna að þeir séu að bregðast við því ófremdarástandi sem hefur verið ríkjandi á Íslandi í útlendingamálum. Þetta mál er heldur til bóta og við munum styðja það í þingflokki Miðflokksins. Eða ég held að það sé til bóta. Það sem maður hefur þó áhyggjur af er að fólk haldi að með þessu sé verið að bregðast við ástandinu sem er í rauninni ekki staðreynd mála hér því að þetta hefur afskaplega takmörkuð áhrif.
Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að það verði hægt að vísa mönnum úr landi hafi þeir framið alvarleg brot og verið dæmdir fyrir það. Það er ekki alveg á hreinu hvað átt er við með alvarleg brot en í ljósi reynslunnar hljótum við að hafa áhyggjur af því að með þessu sé enn verið að auka á kerfisræði og svigrúm stjórnkerfisins til þess að túlka hlutina eftir því sem hentar hverju sinni. En þar hefur verið mjög takmarkaður vilji yfirhöfuð til þess að fylgja þeim rétti sem Ísland þó hefur sem fullvalda ríki þegar verið er að fást við útlendingamálin og menn alltaf fundið hindranir, ástæður til þess að gera ekki hlutina, grípa ekki inn í. Ég sé ekki að þetta frumvarp breyti því endilega.
Fyrir liggja tvær breytingartillögur frá hv. þm. Snorra Mássyni og Brynjari Níelssyni. Þetta eru mjög hóflegar breytingartillögur, óhóflega hóflegar, má kannski segja, en ætlaðar til þess að gefa stjórnarmeirihlutanum kost á að laga málið dálítið og ég styð þessar breytingartillögur eindregið. En við megum ekki missa sjónar á því að með þessu er ekki verið að bregðast við ástandinu eins og það er. Það er ekki verið að breyta því hvernig við tökumst á við þetta stóra vandamál. Vandinn liggur í því að stjórnvöld hafa ekki gert sér grein fyrir eðli og umfangi þess vanda sem hér er við að eiga. Stöku sinnum þegar stjórnmálamenn, eins og nú hæstv. dómsmálaráðherra, skynja óánægju almennings með þetta stjórnleysi og áhrifin af því er kastað fram málum eins og því máli sem við ræðum hér. En það er ekki gripið til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru í samræmi við eðli vandans og umfang hans. Þó ætti Ísland að vera í betri stöðu en líklega nokkurt annað vestrænt ríki til að hafa stjórn á landamærum sínum. Það helgast augljóslega af landfræðilegri legu landsins og svo hinu að hingað kemur enginn beint frá hættu- eða átakasvæðum. Menn hafa viðkomu í öðrum löndum áður en þeir leita hingað. En Ísland hefur komist rækilega á kortið hjá þeim sem skipuleggja þessa fólksflutninga og er núna orðið söluvara, svo að við tölum nú bara hreint út, hjá þeim sem selja væntingar fólks um betra líf í nýju landi og þar bera menn saman bækur sínar, skoða ólíka valkosti og selja dýrustu verði eða beina straumnum til þeirra landa sem bjóða best.
Fyrir vikið hefur Ísland farið úr því að vera með langlægsta hlutfall eða fjölda hælisleitenda í að vera með eitt hið hæsta sem um getur. Breytingarnar sem hafa orðið á samfélaginu vegna stjórnleysis í útlendingamálum almennt á undanförnum árum eru auðvitað yfirgengilegar og ekki hafa verið gerðar neinar ráðstafanir til að bregðast við því, hvorki að hefta strauminn eins og vera bæri né þá að laga innviðina hér og stjórnkerfið að þessari miklu fjölgun. Ég kem nánar að því síðar.
En fyrst ætla ég að ræða aðeins um eðli og umfang vandans. Maður heyrir gjarnan vísað í hugtök eins og mannúð, mikilvægi þess að sýna mannúð án þess að það sé endilega útskýrt nánar og maður heyrir vísað í alþjóðasamninga, oftast sáttmála Sameinuðu þjóðanna um móttöku flóttafólks frá 1951. Sá samningur eða sáttmáli, viljayfirlýsing, myndu menn kannski kalla það núna með tilliti til þess hvernig talað er um samkomulag við Evrópusambandið þegar menn vilja forðast umræðu um það, en þessi yfirlýsing frá 1951 var að sjálfsögðu viðbrögð við afleiðingum seinni heimsstyrjaldarinnar ekki hvað síst, þar sem lönd, þar á meðal Ísland, sammæltust um að það væri mikilvægt að það væru til staðar öruggar leiðir fyrir fólk til að flýja átök, stríð eða aðrar hörmungar, forðast átökin og leita skjóls um ákveðinn tíma, að sjálfsögðu í von um að fólk gæti síðan aftur snúið heim, fremur en að þetta hafi verið ætlað til þess að stuðla að þjóðflutningum.
Það hefur ýmislegt gerst síðan 1951 og eðli hælisleitendamála eða flóttamannamála er gjörbreytt. Flestir þeirra sem nú koma til Evrópu og leita hælis eða tilkynna sig sem flóttamenn gera það vegna þess að þeir hafa keypt væntingar um betri kjör. Fyrir liggur að mikill meiri hluti þeirra sem koma til álfunnar frá löndum utan hennar og sækja um hæli gerir það á vegum glæpagengja sem selja og skipuleggja þessar ferðir. Að mati Evrópulögreglunnar eru yfir 95% þeirra sem koma utan álfunnar til Evrópu í þessum erindagjörðum á vegum slíkra aðila. Þetta eru ekki bara vafasamir aðilar, þetta eru stórhættulegir menn sem taka háar greiðslur fyrir að koma fólkinu áleiðis og setja það með því í mjög verulega lífshættu. Algengt er að það þurfi að greiða 10.000 evrur eða sem því nemur eða 15.000 evrur fyrir miðann til Evrópulandsins.
Þá kannski spyrja einhverjir sig: Bíddu nú við, ef þetta er svona dýrt, að fara í för t.d. yfir Sahara-eyðimörkina, svo á litlum báti yfir Miðjarðarhafið o.s.frv., af hverju kaupa menn ekki bara flugmiða ef þeir eru að borga svona mikið fyrir þetta? Jú, það er vegna þess að Vesturlönd gera sér þó flest grein fyrir því að ef það yrði opnað fyrir að menn kæmu hingað í breiðþotum til að sækja um hæli og notuðu peningana í það frekar en að leita á náðir þessara glæpamanna yrði straumurinn endalaus, enn óviðráðanlegri en nú er. Þannig er komið upp hið sérkennilega fyrirkomulag að Vesturlönd stuðla að því með væntingunum að fólk borgi glæpamönnum þúsundir evra eða dollara fyrir að fara í lífshættulega ferð og komist menn alla leið fá þeir verðlaunin. Þá er til að mynda tekið á móti þeim eins og var hér 2015, 2016 á aðalbrautarstöðinni í München með kostum og kynjum, með blómum, sælgæti og öðru ef menn höfðu komist alla leið. Angela Merkel, þáverandi kanslari Þýskalands, sem sagði, eins og frægt varð: Við ráðum við þetta, þegar hún opnaði landamæri ekki bara Þýskalands heldur Evrópu, hún hleypti fólkinu ekki í flugvélarnar. Nei, það mátti láta reyna á ferðina með glæpamönnunum og kæmust menn alla leið fengu þeir verðlaunin.
Með þessu eru vestræn ríki með öðrum orðum að búa til mjög hættulega hvata og hafa gert sig að söluvöru glæpamanna. Eins og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, orðaði það: Danmörk má ekki verða söluvara glæpamanna. En Ísland hefur orðið það umfram Danmörku. Fyrir þremur, fjórum árum komu tuttugufalt fleiri miðað við íbúafjölda til Íslands að sækja um hæli en til Danmerkur og um tíma var það þannig að fleiri einstaklingar leituðu til Íslands en Danmerkur, þrátt fyrir þann mikla fjölda sem þar var fyrir og þær tengingar sem þar höfðu myndast. Þá var Ísland orðið svo vænlegur kostur að það komu fleiri til Íslands en Danmerkur. Síðan þá hefur aðeins dregið úr straumnum. En ég tel algjörlega óþolandi þegar stjórnmálamenn halda því fram að í ljósi þess að það hafi komið töluvert fleiri fyrir þremur árum en nú sé þetta í rauninni bara ekki lengur áhyggjuefni. Að það hafi komið 1.900 í fyrra, hvað, ekki neitt. Þetta voru 4.500 hérna tveimur árum áður. Þetta er algerlega ótæk nálgun á þetta viðfangsefni. Því gleymum ekki að þá voru þegar búnir að safnast fyrir í landinu þeim mun fleiri þegar þessir 1.900 svo bætast við eða hvað þeir verða margir. Þeim hefur reyndar fjölgað aftur. Síðustu fjóra mánuði síðasta árs var mjög veruleg, gríðarmikil fjölgun, nam tugum prósenta, í komum hælisleitenda til Íslands. Þetta gerðist á sama tíma og hér voru stjórnmálamenn að segja: Það er búið að ná tökum á þessu, það er búið að fækka svo mikið frá 2023. En það er aftur farið að fjölga. Og 1.900 manns bara með þessari leið, því að það er ekki hægt að ræða þessi mál öðruvísi en að setja þau í samhengi við aðrar leiðir sem eru notaðar til að flytja fólk til landsins. Bara með þessari leið, 1.900 manns.
Við Íslendingar höfum í gegnum tíðina, eða frá 1995 þegar þáverandi lög voru sett um þennan málaflokk og fram undir 2017, tekið á móti 24 kvótaflóttamönnum á ári. Það var meðaltalið og þetta voru eiginlega eingöngu kvótaflóttamenn sem komu á þessum tíma en við tókum á móti 24 á ári að meðaltali. Við vildum taka við þeim fjölda sem gæti náð að aðlagast samfélaginu og vildum taka vel á móti fólkinu. Og það voru veittir heilmiklir styrkir og stuðningur við þetta fólk.
Svo var tekið upp á því á síðasta kjörtímabili að innleiða hér, ég held að það hafi tekist í fjórðu tilraun, Miðflokknum tókst að stoppa það í nokkur skipti, svokallaða samræmda móttöku flóttamanna. Og hvað var það? Jú, það þýddi að nú ættu allir þessir 4.500 eins og þá var, sem mættu það árið að fá sömu réttindi, sömu greiðslur, sömu þjónustu og við höfðum veitt 24 á ári fram að því.
Þetta er auðvitað fullkomin geggjun, herra forseti, og gríðarlegt áhyggjuefni fyrir okkur sem samfélag að stjórnmálin hafi ekki verið þess megnug að taka á þessu. En jú, við fáum þetta litla mál hér og munum afgreiða það. Það má ekki verða til þess að við lítum fram hjá umfangi vandans og því sem þarf til að takast á við hann eins og hann raunverulega er. Þetta má ekki verða fórnarlamb umbúðamennskunnar sem einkennir pólitíkina allt of mikið. Hv. þingmenn stjórnarliðsins koma hér upp og ýmist kasta fram fordæmingu eða yfirlætislegum stimplum á þá sem hafa áhyggjur af þessum málum og segja svo: Við þurfum að sýna mannúð. Hvað eiga þeir við? Er það stefna? Gott og vel, ef það er stefna, hverjar eru afleiðingar þeirrar stefnu ef það nægir bara að segja að það þurfi að sýna mannúð og þess vegna þurfi að taka á móti öllum sem koma? Hvað ef það koma 10.000 á þarnæsta ári, sem er ekkert óhugsandi, þetta breytist svo hratt? Ég hef sagt frá því hérna hvernig Finnar upplifðu allt í einu eitt árið að það komu 60.000 manns, bara frá Írak. Þeir vissu ekkert hvaðan á sig stóð veðrið. Þá hafði ein smávægileg breyting laganna í Finnlandi orðið til þess að straumi sem áður lá til Belgíu var beint til Finnlands. Nú eru Danir búnir að herða verulega reglurnar, Norðmenn eru að herða velferðarreglurnar hjá sér gagnvart hælisleitendum, bótareglurnar. Hvað ef straumnum verður í auknum mæli beint til Íslands og það koma 10.000? Á að segja að við ráðum við 10.000 en gagnvart umsækjanda númer 10.001 eigi ekki að sýna mannúð?
Þetta eru engin rök, herra forseti, þegar menn ætla að afgreiða þetta mál með því að segja: Við verðum bara að hafa þetta svona af því að við viljum sýna mannúð. Auðvitað viljum við sýna mannúð en við gerum það ekki með stjórnleysi. Ef við til að mynda hefðum sett þann kostnað sem hefur farið í stjórnleysi þessa málaflokks á Íslandi á undanförnum árum í að aðstoða flóttamenn, raunverulega flóttamenn á nærsvæðunum, þá hefðum við getað hjálpað a.m.k. tífalt fleirum, líklega hundraðfalt fleirum. Ef þetta er spurning um að bjarga fólki og ef þetta er spurning um mannúð, þá hefðum við getað gert það. Það er svo algengt meðal stjórnmálamanna, og það er ekki séríslenskt fyrirbæri, að þá langi að sýna hversu mikla mannúð þeir hafa að geyma og þeir eigi erfitt með að sýna það og státa af eigin mannúð ef peningarnir, stuðningurinn, renna til annarra landa, að þurfa að fá fólkið á staðinn svo menn geti sagt: Sjáið þið, við tökum á móti þessu fólki. Ég er að sýna þessa mannúð. Sjáið þið hvað ég er góður?
Ef við erum raunverulega að hugsa um að bjarga fólki og sýna mannúð á þetta ekki að snúast um okkur sjálf, að upphefja okkur og okkar samfélag eða þá stjórnmálamenn sem tala með þessum hætti þá verður þetta að snúast um að gera það sem er skynsamlegt, bæði fyrir flóttamennina, hina raunverulegu flóttamenn, og fyrir samfélagið okkar. Við skulum ekki alveg gleyma því. Við þurfum að huga að okkar eigin samfélagi líka. Eins og sakir standa erum við ekki í færum til þess. Heilbrigðiskerfið er í uppnámi. Það ræður ekki við viðfangsefnið, ekki hvað síst vegna þessa gríðarlega straums fólks til landsins. Menntakerfið á Íslandi virkar ekki. Það virkar ekki sem skyldi. Það er að skila til að mynda lélegasta árangri á Vesturlöndum í grunnskóla eða alla vega einum þeim lélegasta þrátt fyrir mesta kostnaðinn. Það er m.a. vegna þessa stjórnleysis. Það má halda áfram að spyrja með sama hætti: Hvað ef umsækjandi númer 10.001 komst í fréttirnar og þá á að sýna honum mannúð?
Það er annað, herra forseti. Það er ekki hægt að reka útlendingakerfi þar sem menn fá ólíka afgreiðslu eftir því hvort þeir komast í fréttatíma RÚV eða ekki. En segjum að umsækjandi númer 10.001 kæmist í kvöldfréttir RÚV og bæri sig illa og fyrir vikið fengi hann mannúð líka. Hvað ef það kæmu 100.000 tveimur árum seinna? Hvar á að draga mörkin? Ég held að það ætti að vera öllum ljóst að við séum þegar komin langt fram yfir það sem við ættum að draga mörkin við. Við erum komin fram yfir það sem samfélagið og kerfið ræður við. Og við ættum að hjálpa miklu fleira fólki og sýna miklu fleira fólki mannúð með því að ná stjórn á þessu hér heima og geta fyrir vikið aðstoðað margfalt fleiri annars staðar. Það væri raunveruleg mannúð.
En þetta er ekki bara hælisleitendastraumurinn og óstjórnin í því sem ég mun rekja nánar hér í seinni ræðum. Þetta eru líka, eins og hæstv. dómsmálaráðherra má eiga að hann benti á, samhliða því að skila skýrslu um straum útlendinga til landsins, þættir eins og misnotkun hinna ýmsu kerfa, þar á meðal námskerfisins hér, þar sem menn hafa fundið þá leið að selja fólki ferð til Íslands út á að það verði námsmenn hér. Svo fá menn leiðbeiningar um að um leið og þeir eru komnir til landsins geti þeir lagt fram umsókn um hæli og eigi þá rétt á þessu og þessu og þessu. Og munið, það er alltaf móttökuríkið sem á að uppfylla væntingarnar sem glæpamennirnir búa til og selja. Þegar menn fá ekki allt sem búið er að selja þeim verða þeir ósáttir. Og við hverja kvarta þeir? Mennina sem seldu þeim ferðina? Nei. Þeir kvarta við móttökuríkið.
Margt fleira mætti nefna, til að mynda stórkostlega misnotkun fyrirkomulags sem var komið á hér til þess að auðvelda sérfræðingum að koma til starfa á Íslandi. Ja, þannig var því lýst, en eins og svo oft og iðulega með stjórnmál samtímans var mikill munur á yfirlýstum markmiðum mála og raunverulegum áhrifum þeirra. Hér til landsins hefur verið fluttur mikill fjöldi fólks á þeim forsendum að það væru sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum. Það fólk hefur síðan verið sett í hin ýmsu láglaunastörf og í mjög mörgum tilvikum ætlast til þess að stór hluti launanna rynni til þeirra sem fluttu fólkið inn. Þetta er það sem kallað er mansal. Nú eru reyndar uppi hugmyndir um að tryggja mönnum mikil aukaréttindi ef þeir segjast vera fórnarlömb mansals, með öðrum orðum að búa til enn sterkari hvata fyrir sölu slíkra ferða eða notkun þeirra. Við höfum séð hér ótal dæmi um að fólk hafi verið flutt inn sem sérfræðingar í uppvaski, í naglasnyrtingum, í þrifum og þar fram eftir götunum, fólk sem, eins og ég nefndi, oft og tíðum er síðan ekki frjálst þegar það er komið til landsins af því að það er skuldbundið þeim sem seldu aðganginn að Íslandi.
Þetta litla útlendingafrumvarp gerir því ekki mikið til að taka á vandanum. Það lítur fram hjá eðli hans og umfangi og er kannski fyrst og fremst áminning um að við þurfum ný útlendingalög frá grunni, lög sem taka mið af raunveruleikanum eins og hann er í dag.