157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[13:25]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að fara vítt og breitt um útlendingamál. Hann fjallaði náttúrlega um miklu meira en frumvarpið og allt satt og rétt og við tökum undir allt. Af því að ég veit að hv. þingmaður er búinn að vera lengi á þingi og hefur þekkingu og vitneskju um hvaða skoðun þessir stjórnarflokkar hafa haft í gegnum tíðina, þá spyr maður sig og spyr kannski hv. þingmann líka: Trúir hv. þingmaður því að hugur fylgi máli í þessu?

Í raun og veru er verið að neyða ríkisstjórnina til að leggja fram frumvarp þar sem er hægt að afturkalla verndina. Það er Evrópureglugerð. Hún var byggð á samstarfi milli Schengen-ríkjanna og Evrópusambandsins vegna þess að þetta skiptir Evrópu líka máli, þ.e. að menn sem fá alþjóðlega vernd hér, eru flóttamenn, þeir geta farið út um allt. Það er raunverulega verið að neyða okkur í þetta. Eins og við vitum hlusta þessir flokkar á allt sem gerist í Brussel en svo hefur maður á tilfinningunni að það fylgi ekki alveg hugur máli í þessu vegna þess að það kemur breytingartillaga frá meiri hluta allsherjarnefndar um að þótt það sé afturkallað sé heimilt að veita dvalarleyfi áfram, þótt menn hafi gerst brotlegir, sem þýðir að menn fá síðan ríkisborgararéttinn. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af þessu?