157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[13:27]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það er hárrétt sem hv. þingmaður bendir á í andsvari sínu og ég komst nú ekki alveg að með í ræðu minni hér áðan, enda bara sú fyrsta af mörgum sem munu fylgja eftir í umræðu um útlendingamál hér á komandi vikum, að í rauninni gerir ríkisstjórnin þetta tilneydd og segir frá því í frumvarpinu, eða í greinargerð, að það sé verið að herða reglur í Evrópusambandinu og raunar á hinum Norðurlöndunum líka, það er tekið fram, og þess vegna þurfum við að huga að þessu. Skilaboðin koma þaðan og þar er fullkomin óstjórn á þessum málum, herra forseti. En það er sem sagt búið að takast að gera Íslendinga að það miklum skussum í þessum málaflokki að við fáum skammir frá Evrópusambandinu fyrir að vera ekki með nógu góða stjórn á útlendingamálum í ljósi þess að við erum aðilar að Schengen-samkomulaginu. Og þá ætti það nú að vera viðvörunarbjalla fyrir íslensk stjórnvöld þegar Evrópusambandið, með alla sína óstjórn í málaflokknum, er farið að hafa áhyggjur af stjórnleysinu á Íslandi.

Svo er það spurningin um hvort hugur fylgi máli. Nei, ég óttast að það sé rétt til getið hjá hv. þingmanni að svo sé ekki, því að breytingartillagan sem hann nefndi frá meiri hluta nefndarinnar er einmitt í ætt við það sem ég rakti hérna áðan þegar ég lýsti áhyggjum af því hversu takmarkað þetta frumvarp væri, að það væri helst til þess ætlað að virðast vera að gera eitthvað í málinu. Þegar til kastanna kemur, þessi litli gjörningur hér, þá fara menn að hafa áhyggjur af því að vera að ganga of langt, að við skulum alla vega opna á að það verði hægt að líta fram hjá þessu. Við skulum halda þeim möguleika opnum að þó að við segjum að það verði nú eiginlega að gera þetta verði samt leiðir til að komast hjá því að fylgja þessu eftir.