útlendingar.
Virðulegi forseti. Já, ég óttast að það sé akkúrat raunin og það muni raungerast, sérstaklega ef þessir flokkar verða áfram of lengi í ríkisstjórn. En við erum þó sammála um það væntanlega að þetta frumvarp sé til bóta miðað við það sem áður var. Við munum væntanlega styðja þetta mál. Eins og hv. þingmaður kom fram með í ræðu sinni er þetta bara lítið mál í því sem þarf að gera í raun. Ég spyr, eins og þetta hælisleitendakerfi raunverulega er, hvort það sé ekki bara ónýtt, það þurfi bara að afleggja það og við stjórnum fullkomlega sjálf, af því að við erum sjálfstætt ríki og viljum vera það áfram, eða flest okkar vilja það, og að við verðum að afleggja þetta alþjóðlega verndarkerfi og við stjórnum því nákvæmlega hverjir koma og á hvaða grunni og af hverju. Munum við nokkurn tíma ná stjórn á landamærum öðruvísi?