útlendingar.
Herra forseti. Í seinna andsvari sínu komst hv. þm. Brynjar Níelsson að kjarna málsins. Þetta er ónýtt kerfi, algjörlega handónýtt, og það verður ekki lagað með smábótum eins og þetta frumvarp, sem jú, ég tek undir, eins og ég nefndi í ræðu minni, er heldur til bóta, nema hvað ég hef dálitlar áhyggjur af að svona smávægileg mál séu ekki til bóta að því leyti að þau dreifa athyglinni, tefja tímann þangað til menn loksins gera eitthvað sem skiptir máli.
Þetta minnir aðeins á það sem ég gerði athugasemdir við hér áðan, frumvarp hæstv. forsætisráðherra um breytingar á forsetaembættinu, þar sem hæstv. forsætisráðherra stærði sig af því að þar mætti spara tugi milljóna með einhverjum rafrænum undirskriftum. Jú, það er besta mál að spara 10 millj. kr. en svo er komið með þennan 10 millj. kr. sparnað og það kynnt sem dæmi um að ríkisstjórnin sé að standa sig í að spara, nýbúin að afgreiða hér fjárlög þar sem bætt var 143 milljörðum í útgjöld ríkissjóðs. Það er það sem ég hef áhyggjur af varðandi þetta frumvarp, að það verði notað til að dreifa athyglinni og villa fólki sýn, jafnvel þó að nefndin sé farin að hafa áhyggjur af að málið geti raunverulega haft einhver áhrif og þess vegna þurfi að reyna að draga úr möguleikunum á því.
Við þurfum ný útlendingalög. Það voru stórkostleg mistök að samþykkja útlendingalögin sem tóku gildi í byrjun árs 2017. Það voru fyrirsjáanleg mistök, búin til í einhverri þverpólitískri nefnd, yfirleitt ekkert gott sem kemur út úr slíku. Það þarf að henda þessum lögum, setja þau í pappírstætarann, láta þau hverfa úr lagasafni Íslands og setja ný útlendingalög sem taka mið af raunveruleikanum, samtímanum.