157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[13:32]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér fjöllum við um frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga sem snýr að heimildum til afturköllunar alþjóðlegrar verndar og tengdum atriðum. Ég þekki þetta mál ágætlega enda kom ég fyrst með fyrirspurn um breytingar á íslenskum lögum í þessa veru fyrir um tveimur árum. Markmið frumvarpsins er gott enda var frumvarpið auðvitað tilbúið í tíð síðustu ríkisstjórnar þegar óvænt var boðað til kosninga. Í því samhengi er auðvitað hægt að spyrja sig að því af hverju það kemur svona seint inn í þingið en það er síðan annað mál. Við þekkjum það auðvitað að önnur mál hafa verið sett í forgang á þinginu.

Í þessu frumvarpi er lagt til að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd þegar útlendingur hefur framið alvarlegt afbrot eða telst ógn við öryggi ríkisins eða samfélagsins. Það er jafnframt lagt til að fellt verði brott ákvæði þess efnis að stjórnvöld þurfi að meta sérstaklega hvort þurfi að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef umsókn um alþjóðlega vernd hefur tekið of langan tíma. Markmiðið með þessu frumvarpi er sem sagt að samræma íslenska löggjöf við framkvæmd og löggjöf annarra Norðurlandaþjóða og koma í veg fyrir þessar séríslensku reglur sem hafa reynst mjög óskilvirkar í framkvæmd og hafa skapað okkur hér algjöra sérstöðu og ekki á góðan hátt. Það er jákvætt að hér hafi loksins náðst pólitísk samstaða um að stjórnvöld hafi skýrar heimildir til að bregðast við tilvikum þar sem einstaklingar sem hafa hlotið vernd í landinu valda hættu eða ógn og varðandi svokölluð mannúðarákvæði sem mega ekki verða til þess að kerfið okkar verði óskilvirkt og jafnvel óréttlátt.

Mig langaði að ræða aðeins um stöðuna varðandi umræðu um útlendingamál og þessa pólitísku samstöðu sem hér hefur myndast og við eigum auðvitað að nýta til góðra verka. Við þekkjum það auðvitað að þetta er algerlega gjörbreytt staða og það voru aðrir sem ruddu brautina í umræðu um útlendingamál, aðrir en þeir sem nú halda á stjórnartaumunum hér á Íslandi. Við þekkjum það vel. Það voru allt aðrar aðstæður hér uppi á þinginu þegar við vorum að ræða önnur svokölluð lítil útlendingamál eða bara allar þær breytingar sem við höfum ráðist í á undanförnum árum á útlendingalöggjöfinni og Sjálfstæðismenn hafa farið fyrir.

Ég kem hingað upp sérstaklega til að halda til haga breytingartillögu okkar Sjálfstæðismanna við málið sem hv. þm. Brynjar Níelsson lagði fram. Tillagan okkar gengur lengra en tillaga hæstv. ráðherra og meiri hluta hv. nefndar. Breytingartillagan liggur frammi og hefur verið reifuð ágætlega hér í þingsal, m.a. af hv. þm. Brynjari Níelssyni. Hún varðar það m.a. að afnema skilyrði um ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi og bætir við lista yfir alvarleg afbrot sem skuli leiða til afturköllunar; brot eins og manndráp, kynferðisbrot og alvarlegar líkamsmeiðingar. Með þessu viljum við Sjálfstæðismenn stíga fastar til jarðar til að tryggja að við getum brugðist við af festu og ákveðni við tilvikum sem varða alvarlega hagsmuni og öryggi íslensks samfélags. Útlendingalöggjöfin þarf að vera skýr og framkvæmanleg og hún verður að byggja á skýrum reglum um hvenær vernd verður dregin til baka án þess að brotið sé gegn grundvallarmannréttindum og alþjóðlegum skyldum Íslands. Það er staðan sem við erum í og erum að reyna að feta okkur í.

Það er frumskylda íslenskra stjórnvalda að gæta að öryggi okkar sem búum hér. Við þekkjum það orðið vel hversu miklum fjármunum Íslendingar hafa varið til að leggja sitt af mörkum til alþjóðlega flóttamannavandans sem fer síst minnkandi. Aðsóknin og framkvæmdin hafa orðið til þess, bæði hér og víðar á Vesturlöndum, að tilfinnanlegur munur er á stuðningi almennings við alþjóðlega kerfið sem hefur verið smíðað utan um þennan vanda. Það felast mikil réttindi í því fyrir fólk að hljóta hér alþjóðlega vernd og á móti miklar skyldur og fjárútlát fyrir íslensk stjórnvöld, fyrir íslenska skattgreiðendur sem borga brúsann. Það er alger lágmarkskrafa að þeir sem fá að vera á þessum grundvelli, fái að vera hér í friðsælasta og öruggasta ríki heims, ógni okkur ekki með því að beita ofbeldi, með því að myrða eða með því að nauðga, svo einhver dæmi séu tekin. Það er til svolítið sem heitir að fyrirgera rétti sínum.

Í þessu samhengi vil ég benda á að við erum gjarnan langt á eftir t.d. Norðurlöndunum varðandi breytingar á útlendingalöggjöfinni okkar. Í greinargerð frumvarpsins er einmitt farið yfir það hvað við erum einmana þegar kemur að ýmsum hnökrum í okkar löggjöf, hnökrum sem við Sjálfstæðismenn höfum að vísu verið að lagfæra einn af öðrum eins og ég er aðeins búin að fara yfir, en í allt öðrum veruleika en nú og við mikla andstöðu, m.a. hér á þingi, líka frá hv. þingmönnum sem nú tilheyra stjórnarmeirihlutanum og hefur reyndar farið lítið fyrir í þessari umræðu. Ég t.d. skil það á fréttaflutningi að Norðmenn séu að ræða um þessar mundir að brottvísa, m.a. hælisleitendum og flóttamönnum, á grundvelli líklegra afbrota, ekki framinna afbrota heldur líklegra. Verður það kannski næsta skref sem við þurfum að taka hér varðandi okkar löggjöf og þá hversu langt á eftir hinum Norðurlöndunum?

Mig langar að nefna eitt atriði að lokum sem ég hef velt fyrir mér varðandi tillögurnar sem við erum að ræða hér. Það varðar fyrirspurn sem liggur hér inni frá mér til hæstv. dómsmálaráðherra um ferðalög þeirra sem hafa fengið alþjóðlega vernd til síns heimalands og afturköllun af þeim sökum. Við höfum sem sagt verið að heyra af því sögur, og fjölmiðlar hafa reyndar tekið þetta til umfjöllunar, að það þekkist hér á landi að fólk hefur fengið alþjóðlega vernd með öllu tilheyrandi vegna bágrar stöðu í heimalandinu, ofsókna eða stríðs eða hvað sem það kann að vera, en skellir sér síðan í sumarfrí til sama lands þegar verndin er í höfn. Það er auðvitað algerlega ótækt og hrein og klár misnotkun á kerfinu okkar. Eins og ég segi þá liggur inni fyrirspurn frá mér um þetta í þinginu og það er spurning hvort vanti eitthvað upp á löggjöfina okkar í þessum efnum.

Virðulegi forseti. Það er jákvætt að við séum að ræða þessi mál hér við betri aðstæður og meiri frið og yfirvegun en hefur verið og umræðurnar í gær voru svo sem ágætar. Ég hvet hv. nefnd til að taka þessi mál til enn betri skoðunar og umfjöllunar og þá sérstaklega tillögur okkar Sjálfstæðismanna.