157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[13:39]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Víðir Reynisson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir ræðuna. Mig langar að spyrja hana út í breytingartillöguna. Við ræddum hana hér aðeins í gær, ég og hv. þm. Sigríður Á. Andersen, og veltum fyrir okkur þeirri upptalningu sem er í henni, það eru sem sagt talin upp í henni ákveðin brot, og hvort ekki væri hætta á því þegar farið er í upptalningu sem slíka að þá væri raunverulega verið að þrengja málið. Ég spyr vegna þess að þetta kom að sjálfsögðu til umræðu í nefndinni, hv. allsherjar- og menntamálanefnd, þegar við vorum að vinna í þessu. Við fórum yfir þessa þætti mjög ítarlega með mörgum sérfræðingum og niðurstaðan var, og það var samdóma álit allra þeirra sem komu fyrir nefndina um þetta mál, að um leið og við byrjuðum að telja upp einstaka brotaflokka þá þýddi það, ef það væri ekki tekið sérstaklega fram ásamt öllum öðrum, þá væri hætta á því að túlkunin þrengdist miðað við þetta, þ.e. það sem ekki væri talið upp væri þá ekki ígildi afturköllunar. Mig langar aðeins að heyra skoðun þingmannsins á þessu.