157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[13:41]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og verð að segja að það gleður mig að eiga, eins og ég var að vísa til áðan, bara yfirvegaða og hófstillta umræðu hér, t.d. við hv. þingmenn frá Samfylkingunni. Það er af sem áður var og ég fagna því alveg sérstaklega.

Varðandi athugasemd hv. þingmanns um það hvort útfærsla tillögu okkar Sjálfstæðismanna kunni á einhvern hátt að þrengja möguleikana þá er það auðvitað ekki ætlunin. Meginmarkmiðið með breytingartillögu Sjálfstæðismanna er auðvitað að ganga lengra, m.a. varðandi að ekki sé um heimild að ræða heldur skyldu annars vegar og hins vegar að afnema sérstakt skilyrði um að um ítrekuð brot sé að ræða. Í raun og veru er þetta bara lagatæknileg athugasemd frá hv. þingmanni. Ég gat ekki heyrt hann væri eitthvað sérstaklega andvígur þessum markmiðum. Er þá ekki tilvalið verkefni fyrir hv. þingmenn sem sitja í nefndinni að ræða hvernig er hægt að útfæra þessa tillögu okkar Sjálfstæðismanna og hvort orðalagið ætti að vera með öðrum hætti eða hvernig sem það er, til þess að markmiðið náist? Það er, eins og ég sagði, að ganga lengra, m.a. varðandi skylduna, varðandi það að afnema þetta orðalag varðandi ítrekuð brot og fleira sem þar er tínt til.

Ég geri ekki athugasemd við að hv. þingmenn í nefndinni fari síðan sérstaklega yfir orðalagið og gott að við séum á þeim stað að við séum að ræða útfærsluna en ekki í raun markmiðið sem við Sjálfstæðismenn leggjum til.